sunnudagur, september 26

Vindskeiðar úr viðgerð

Vindskeiðarnar eru komnar úr viðgerð. Þannig var að það þurfti að laga framspoilerana eftir eitthvað óhapp. Sagan segir að fyrri eigandi SAABsins hafi alltaf þurft að flýta sér í ÁTVR á Hvolfsvelli og hafi sett met ítrekað. Metin hættu þó að falla eftir að SAABinn fór í geymslu og standa sjálfsagt ennþann dag í dag enda fáar flugvélar eftir í þeirri sveit þvímiður..

Jæja ég er svakalega ánægður með viðgerðirnar á spoilerunum mínum og í tilefni þess fór ég niður í skúr og sauð vinstri hliðina í bílinn. Það tókst mikið betur upp vinstra megin og er það vel (ekki það að hægri hliðin sé eitthvað slæm það er langt frá því). Ég fer svona að huga að því að fá sprautarann til þess að kíkja í skúrinn hjá mér, ég þarf nefninlega að spyrja hann nokkurra spurninga í sambandi við framhaldið og svo að sjálfsögðu hvað herlegheitin kosta.

Meira síðar
Góðar stundir

Birkir

2 Comments:

At 11:52 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Hey, metin hættu að sjálfsögðu að falla þegar svunturnar brotnuðu, þá var loftflæðið ekki eins gott eins og áður,(den körer nemlig mycket fort med den kjolpaket). Við höfum það fyrir satt að metin hafi ekki haggast enn þann dag í dag, en þau munu falla þegar að sá rauði verður svartur og brjálaður.

Kv. Nóni

 
At 3:56 e.h., Blogger kuttson said...

Uss ég hlakka alveg svakalega til. Það verður erfitt að hemja sig:)

 

Skrifa ummæli

<< Home