SAAB hvað annað?
fimmtudagur, janúar 3
föstudagur, desember 14
Ennþá meira breyttur
Jæja nú fara alveg að koma myndir af síðustu afrekum í skúrnum. Þannig er nefninlega mál með vexti að ég gat ekki horft lengur uppá bílinn svona fínan að utan en jafn ógeðslegan að innan og raun bar vitni. Þess vegna reif ég hurðaspjöldin, hnéhlífina og sætin úr og hófst handa. Ég fór í Hvítlist og keypti leðurmálningu (svarta að sjálfsögðu) Því næst þreif ég hurðaspjöldin og hnéhlífina til þess að málningin myndi festast við. Eftir nokkra klukkutíma var allt orðið svart og reyndar með hreinum ólíkindum hvað þetta tókst vel. Þið fáið að sjá myndir af herlegheitunum þegar ég kemst með myndavélina til Þóris.
Þegar innréttingin er orðin svona ansi sexy gengur ekki að hafa sætin ljósbrún og skítug. Þess vegna hafa tekist með mér og Þóri samningar um að ég fái grá leðursæti úr bíl sem hann á og notar ekkert meira. Ég þarf að breyta festingum þannig að ég geti boltað þessi sæti í en til þess þarf ég að komast í suðu en hana hef ég ekki komist í ennþá.
Þriðja aðgerð undangenginna daga var að færa afturöxulinn inn í miðja hjólaskálina. Þetta er gert til þess að koma 16 tommu felgum með sæmilega stórum dekkjum undir bílinn án þess að þau rekist í hjólbogana í tíma og ótíma. Auk þess eru nýrri bremsurnar komnar í að aftan og þ.a.l handbremsan líka sem er töff..
Myndirnar eru á leiðinni
fimmtudagur, nóvember 15
Töluverðu síðar, töluvert breyttur
Jæja loksins er eitthvað að gerast í SAABheimum...
Ég setti driflæsingu í gírkassann í vor áður en ég setti vélina niður, þeir hjá abbottracing í bretlandi áttu nefninlega svoleiðis. Skemmst er frá því að segja að bíllinn keyrir eins og go-kart eftir þessa breytingu. Þvílíkur munur á einum bíl.
Svo setti ég undir mig hausinn núna á dögunum og setti í bílinn bremsur af nýrri gerð, reyndar bara búinn að framan en afturöxulinn er í sandblæstri núna as ví spík. Dekkin færast með þessari breytingu tommu utar en á eldri felgunum og verður þetta því orðinn formúlubíll áður en um langt líður, eina vesenið er að nú er vetur og göturnar ekki þurrar. En þá er gott að bregðast við með því að spóla svo mikið að ísinn bráðni..
Meira tjún er ekki á dagskrá afþví að túrbínan getur ekki meir og því er tilvalið að eyða pening í að kaupa svosem eins og Super Aero felgur, stóran spoiler á skottið og svona eitís afturrúðuskyggni. Eigum við að ræða það eitthvað???
Bless í bili
þriðjudagur, apríl 10
Ég er farinn að halda að maðurinn í Svíþjóð sem selur þessar læsingar sé nú eitthvað meira en lítið með allt niðrumsig. Það var nefninlega þannig að hann sagði að þetta yrði til hjá honum í apríl en svo þegar ég hafði samband við hann sagði hann mér að það yrðu minnsta kosti 2 mánuðir í að þetta yrði til.
Þannig að ég er að fara setja saman gírkassa án læsingar. Það er svo sem allt í lagi ég get alveg flýtt mér hægt í sumar. Fer bara á bílnum til Svíþjóðar í haust með rassgatið fullt af peningum og set læsinguna (sem verður vonandi til þá) í hjá honum. Svarta þruman ætti því að komast á stjá einhverntíma með vorinu.
Aðrar fréttir eru þær að ég er hættur hjá Heklu í það minnsta í bili en verð að bora í sumar, næg verkefni framundan, eitt í Reykjavík, annað í Eyjafirði og svo hingað og þangað.
Ég er líka að klára skólann núna í vor en það gengur bara mjög vel hjá mér, þannig að þetta ætti bara að verða gaman.
Hef lítið meira að segja í bili
Haldiði ykkur á réttum kili
fimmtudagur, janúar 18
Hæ.
Ég er núna búinn að panta mér driflæsingu í SAABinn sem kemur heim kannski í byrjun apríl í síðasta lagi. Ég hannaði líka nýja plötu aftan á kassan sem styrkir hann, ásamt því að vera búinn að smíða leguhús í hann en svo ætla ég líka að gera eitt í viðbót sem ég nenni ekki að útskýra hér, afþví að fáir myndu átta sig á því hvað ég væri að fara. Samt sem áður heitir þetta chrush collar.
Með þessu öllusaman hlýt ég að geta keyrt eitthvað hraðar, ef ekki þá allavega með minni hávaða en þeir sem settust í saabinn tóku eftir því að legurnar voru gjörsamlega búnar.
Ég hlakka til að sjá hvað gerist í sumar. Svo væri líka skemmtilegt að vita hvað fljótasti svona bílinn hefur keyrt kvartmíluna hratt, svona svo ég viti hvert ég ætti að stefna.... MÚHAAHAHAHAHA
mánudagur, desember 18
Ég held að það hafi aldrei liðið jafn langt á milli blogga hjá mér. Er þetta ekki að verða eitthvað úrelt (bloggskrif)? Hvað finnst ykkur? En jæja fyrst ég er byrjaður þá get ég sagt ykkur sitt af hvoru.
Ég ákvað að reyna aðeins betur við gírkassamálin sjálfur áður en ég fel einhverjum öðrum að reyna að koma gömlu 900 bílunum yfir 100 mílurnar. Ég er búinn að smíða nýtt leguhús inní kassann úr mun sterkara efni auk þess sem ýmislegt annað er í pípunum. Ég ætla líka að kaupa aðeins meira af nýjum hlutum inn í kassann áður en hann fer saman. Þetta gerist eftir jól, þegar ég hef aftur smá tíma og pening.
Í öðrum fréttum er það að ég tók þessi líka glimrandi fínu próf og fékk ágætisútkomu úr þeim. Þetta eru síðustu jólaprófin í bili og er það hressandi. Fór svo aðeins að vinna í geðbilununarhúsinu Heklu HF en þar er ALLTAF brjálað að gera. Get eiginlega ekki beðið eftir því að þessi jól líði vegna þess að þá er lokatörnin í skólanum eftir og svo getur maður bara farið að strjúka um frjálst höfuð. Getur maður ef til vill farið að leyfa sér ögn meira svona peningalega séð. Hvað tekur svo við næsta sumar er ekki alveg komið á hreint en nokkur járn eru í eldinum.
Skrifa kannski aftur fljótlega ef einhver er sem les þetta ennþá.
Birkir
þriðjudagur, september 19
Ég lagðist í heilmiklar pælingar varðandi þessi gírkassamál. Ég hringdi meira að segja til útlanda og er búinn að skrifa meira á spjallborð núna á hálfum mánuði heldur en ég hef gert bara yfirhöfuð.
Þessi heilabrot og spjall við menn sem ég hef rætt við hafa leitt mig að þeirri niðurstöðu að láta reyna á hvað hann þolir eftir að ég hef farið höndum um hann með eins litlum tilkostnaði og frekast er unnt. Þetta felur í sér smíði á pinion húsi úr stáli en húsið í kassanum er úr áli original og það hefur brotnað í bílum sem bjóða ekki uppá jafnmörg hestöfl og minn. Þetta felur líka í sér smíði á loki sem kemur aftan á gírkassann og eyru á það sem vinna á móti því að gírkassahúsið geti undið sig.
Ef þetta hefur ekkert að segja og það er alveg jafnauðvelt að skemma þetta stöff, þá er að fara að skoða aðra valkosti til dæmis mætti nefna gírkassa frá honum Jörgen í svíþjóð. Ég er ekki hættur við að kaupa driflæsinguna af honum samt og ekkert endilega gírkassann heldur.
Sem sé, nú ætla ég að eyða tíma, peningum og vinnu í það að afsanna það sem búið er að sanna að ekki sé hægt að gera, bara svona til þess að vera 100% öruggur á því að það sé ekki hægt að afsanna þetta fyrir mönnunum sem vilja ekki trúa því að þetta séu í raun æðislegir gírkassar sem geta keyrt hratt:) Skilið?
laugardagur, september 9
Ég held ég sé óákveðnasti maður sem ég veit um. Þetta er mikill galli. Nú hringsnýst ég til dæmis yfir því hvað ég eigi að gera í þessum gírkassamálum og veit hvorki í þennan heim né annan hvaða ráða ég á að grípa til. Það liggur jú fyrir að það er alltof dýrt að kaupa gírkassa frá Scanwest í bandaríkjunum litlir 4500 dollarar án læsingarinnar sem mig langar í frá Svíþjóð. Þar get ég svo fengið kassa ásamt þessari læsingu fyrir um 300 þús, en ég veit bara að þessir kassar frá svíþjóð hafa líka verið að svíkja.
Ég hef grófa hugmynd um hvað þeir sem selja styrkta gírkassa gera við þá og þá er aftur orðin spurning hvort ég get ekki gert alveg það sama og þeir gera fyrir mikið minni pening? Ég get alveg labbað með innvolsið úr gírkassanum í BAADER umboðið þar sem þeir geta yfirborðshert gírana fyrir mig, ég get líka látið smíða fyrir mig barkalæsingu hérna uppi á höfða, ég hlýt að geta grafið upp svona fjögurra gíra kassa sem á að vera sterkasta caseingin (gírkassahúsið sjálft) sem var framleidd..
Ég held stundum að ég sé með alveg ofboðslega vel lagaðan grjónagraut í hausnum í staðinn fyrir heila. Þetta er allavega alveg í graut þarna uppi núna.
HJÁLP
sunnudagur, júlí 16
Alveg er það nú dæmigert að einhver hafi tekið sig til og skellt hurðinni sinni utan í bílinn minn þannig að nú er hann dældaður. Þetta er í svona þriðja eða fjórða skiptið sem ég skil bílinn eftir þar sem einhver umferð bíla er um bílastæðið. Ég má greinilega ekki hugsa til þess að fá að hafa þetta bara flott eftir allt sem ég hef nú lagt á mig. Ég er orðinn leiður á þessu, þess má geta að það er búið að rispa hann fyrir mér.
Ég fékk kúpplinguna um daginn, það er óhætt að segja að hún sé reis, en ég held það bíði ef til vill aðeins að setja hana í afþví að þessi gírkassi gæti hrunið hvenær sem er, ég þarf að ákveða hvort ég ætla að gera upp, kaupa eitthvað að utan eða setja þennan sem ég á undir hinni vélinni í ?
En nóg af leiðinlegum bílamálum. Við steggjuðum Kidda nefninlega núna í gær og má segja að þetta hafi heppnast alveg snilldarlega. Parið hittist á Eiðistorgi kl 11:30 þar sem þau spiluðu saman nokkur lög, svo skildu hóparnir (stelpur og strákar og við fórum drengirnir í mat til Þóris, svo rakti dagskráin sig fram eftir degi en farið var í listflug, go - kart, sund og sumarbústað í kjós þar sem við átum og drukkum fram undir morgun. Þetta var rosa gaman.
miðvikudagur, júní 14
Ég er að hugsa um að kíkja til Akureyrar núna um helgina. Alltaf vinsælt að koma við í Brynju og fá sér ís og renna svo í sveitina til hennar ömmu og hafa það gott. Í sveitinni hjá ömmu er þessi dýrindis sófi sem er BEST að leggja sig í, þögnin alger en klukkan á veggnum slær einusinni á hálftíma fresti og svo alltaf á heilatímanum og tikkar þess á milli í rólegheitum. Sveitir eru æðislegar og þetta er náttúrulega fallegasta sveit í heimi, Eyjafjörðurinn. Það er ekkert víst að allir séu sammála mér en svona er þetta bara.
Bíladagar og 17 júní eru aðalástæða norðurferðarinnar en ég hugsa að einhverjir eigi eftir að slást í för með mér norður.... Ég auglýsi hér með eftir ferðafélögum, SAABinn ætlar í sína fyrstu langferð þessa helgi.
laugardagur, maí 20
Æfing á kvartmílubrautinni
Fór á æfingu í gærkvöldi hjá Kvartmíluklúbbnum og keyrði nokkrar ferðir. Ég komst best 15,2 sek á einhverjum tæpum 93 mílum eða tæplega 150 km/klst. Eftir að hafa farið 3 ferðir kíkti ég á loggið sem tölvan skráir niður af mikilli nákvæmni, en skemmst er frá því að segja að bíllinn var ekki að bústa nema 0,85 bar en ég hélt alltaf að hann væri að bústa 1,2 bar. Á milli þessarra talna liggja einhver hestöfl sem ég vil endilega ná í, en áður en ég geri það þarf ég nýja kúplingu því þessi getur ekki meira. Ég þarf reyndar líka nýjan bústmæli vegna þess að þessi sýnir bara eitthvað rugl sem er hundfúlt afþví að hann er flottur..
Jæja skrifa eitthvað þegar ég er búinn að finna einhverja kúplingu.
fimmtudagur, maí 11
Próf að verða búin
Jæja þetta er 4ða færslan þar sem fyrirsögnin er próf-eitthvað, sem þýðir líka að ég er búinn að eiga SAABinn í rétt rúm 2 ár. Í gær fór ég í 2 próf þ.e Burðarþolsfræði og stillitækni. Þetta eru áfangar sem gera frekar miklar kröfur og þess vegna gekk ekki alveg eins vel og ég vildi, vont að fara í tvö próf sama dag..
Þar sem heilabúið var innistæðulaust fyrir meiri lærdómi ákvað ég að fara í smá lagfæringar á bílnum. Þær fólust í því að skipa um smá plastfittings sem er á smurrörum á kambásnum, en þegar það var búið ákvað ég að athuga nú hvort kambásarnir væru örugglega ekki með rétta staðsetningu m.v sveifarásinn. Það reyndist ekki vera því pústásinn var of fljótur að loka. Þessu kipptum við Þórir í liðinn rétt si svona og fórum svo út að keyra. Ventlatikkið er á bak og burt kambásarnir dead on, þannig að nú verður fyrst hægt að fara að gefa í !!!
Skrifa þegar eitthvað fréttnæmt gerist næst.
þriðjudagur, apríl 25
Eitthvað rugl í gangi
Jæja ég er búinn að fara svolítið út að keyra núna að undanförnu og allt gott um það að segja svosem. Nema í gær þá kom eitthvað skrýtið hljóð í hann, einna helst eins og hosuklemma á öxlinum, (sem keyrir bílinn áfram) væri að nuddast utan í eitthvað. Ég tók því dekkið undan í gær og allt virtist eðlilegt á að líta, svo fór ég út að keyra en ekki langt, því mér finnst hann eitthvað þvingaður og vitlaus. Vona að gírkassinn sé ekki að syngja sitt síðasta, ég var nefninlega nýbúinn að skipta um olíu á honum, og eins og allir vita þá er olía dýr:) (Kannski er þetta svolítið súrt djók, ef einhver fattar það)
Jæja það þýðir víst ekki að fást um það. En að öðru mun skemmtilegra. Ég tók nefninlega Þóri í spyrnu og pakkaði honum saman:):) Þórir; það gengur ekki að vera á svona kraftlitlum bíl og láta einhvern gamlan 900 bíl þeysa framúr eins og ekkert sé.... Múhahahaha
sunnudagur, apríl 16
Smásigrar?
Ég er búinn að vera að kljást við hraðamælinn í bílnum mínum uppá síðkastið, hann hefur ekki viljað virka alminnilega. Á miðvikudagskvöldið spaðaði ég svo mælaborðið allt í sundur og tók mælinn úr. Ég komst að því að hann er í lagi en afþví að bakinn sem ég hafði fengið úr bíl einum (RIP) var ekki alveg fastur var alltaf flökt á mælinum.
Um daginn pantaði ég svo nýjan hraðamælisbarka á www.eeuroparts.com og eftir að ég setti hann í í dag er allt í lagi. Þetta er ég mjög ánægður með. Ég hef komist að því að best er að hugsa um einn hlut í einu. Ef maður hugsar um hvað er margt sem bíður þess að úr því sé bætt er hættara við því að maður fari bara alls ekkert í skúrinn. Ég er til dæmis búinn að gera endurbætur á leiðslunum frá intercoolernum að soggreinni núna en það var að hrjá mig síðast þegar ég skrifaði. Þetta smásaman kemur nú allt, sumir sem ég tala við glotta við tönn og segja að þetta sé sagan endalausa, ég lái þeim ekki vegna þess að þetta eru yfirleitt menn sem ekki hafa reynt við svona og þeim dettur bara ekkert í hug hvað þetta er í raun mikil vinna og yfirlega.
Svo er nú ánægjulegt að Nóni sé byrjaður að hlúa að gráa 900 SAABinum sem staðið hefur um tíma, það er flottur bíll sem má alls ekki skemmast.
Meira er væntanlegt innan skamms, nú væri tildæmis upplagt að fara að koma vatnskælingunni á túrbínuna þar sem hún er farin að erfiða aðeins, já ég skrifa næst að því loknu.
Hafiði það gott í páskaeggjaátinu!!!
Birkir
þriðjudagur, apríl 11
Meira búst !!!
Jæja þá er komið meira búst, og bara dáltið páver sem er djöfull skemmtilegt, en fyrir liggur að breyta aðeins pípunum frá intercoolernum að inntakinu vegna þess að hosa ein sem er á þeirri leið skýst af í hvert einasta skipti sem ég gef í. Þetta er ekki flókin aðgerð og er ég að spá í að skjótast í þetta uppi í skóla á morgun.
En skrýtið er þetta með mig, ég nenni bara að laga eitt í einu, það liggur fyrir að gera helling í viðbót eins og að fá vit í hraðamælinn, setja vatnskælingu á túrbóið, skipta um vatnsdælu o.s.frv en ég bara fæ mig ekki í þetta, núna langar mig bara að fara út að keyra!!
Annars er búið að vera smá stríð við kúpplinguna í bílnum en fína kelvar kúpplingin sem var í þegar Þórir var með þessa vél í hjá sér heldur ekki neinu núna. Ég endaði því á því að setja einhvern gamlan disk sem ég átti í og hann virðist halda svona þolanlega fyrir þetta settöpp.
Held að verði spennandi keppni á brautinni í sumar, það virðist vera að nokkuð margir verði með bíla sem verður gaman að kljást við allavega Gunni á ofur-golfinum, einhverjir BMWar o.fl sem ég kann ekki að nefna. Ég verð búinn í prófunum áður en fyrsta keppni verður þannig að þá gefst einhver tími í að græja og gera það síðasta.
sunnudagur, apríl 2
Eitthvað að gerast
Núna er sumsé intercoolerinn kominn í og pípurnar frá honum orðnar rafpóleraðar og ægilega gæjalegar. Setti svo analyzerinn í í kvöld og stillti (með hjálp Þóris) blönduna en hún var alltof rík, þ.e.a.s of mikið bensín á móti því lofti sem er fyrir hendi núna. Túrbínan var að blása 0,6 börum og er orðið erfitt fyrir hvern sem er að hafa sigur í spyrnum en tildæmis þurftum við Þórir að horfa í aftur spegilinn til þess að sjá einn nýlegan AUDI sem við spyrntum aðeins við.
Nú er bara að hækka bústið hressilega í viðbót og þá verður þetta æðislegt.
fimmtudagur, mars 23
Ekki er margt að frétta úr bílskúrnum núna þessa stundina. Fyrir að verða viku síðan kláruðum við Nóni samt að gera Intercoolerinn og pípulagnirnar fyrir hann. Ég held að þetta sé flott settöpp, allavega á þetta eftir að líta skrambi vel út eftir að ég fæ lagnirnar til baka úr rafpólerun.
Ég hækkaði líka base boostið alveg helling og þegar ég fór með bílinn í viðgerð á mánudaginn þorði ég ekki að gefa meira í en svo að þrýstingurinn færi yfir 0,5 bar, held líka að kveikjutíminn sé ekkert góður þannig að þegar ég loksins kem þessum intercooler fyrir í eitt skipti fyrir öll verður hægt að fara að tjúna að einhverju viti. Ég var sko eiginlega alveg búinn að setja þetta saman á mánudagsnóttina þegar ég uppgötvaði að ég á eftir að tala aðeins meira við svuntuna að framan en hún rekst í STÓRU STÓRU lagnirnar frá coolernum.
Nú er Þórir kominn með internet og server þannig að myndasíðurnar eru komnar í gangið þannig að það er von til þess að ég geti farið að setja inn myndir fljótlega.
föstudagur, mars 10
Intercooler og fleira (misskemmtilegt)
Ég og Nóni höfum verið að föndra intercoolerinn saman, nú á bara eftir að pípa svolítið og græja til þess að framendinn megi koma á bílinn sem verður nú aldeilis hressandi. Ég sótti mér bæði hraðamælisbarka og barka til þess að opna húddið með um daginn og fékk þá báða til þess að virka en eftir 40 km akstur gafst hraðamælisbarkinn upp og hraðamælirinn er alveg útúr korti hjá mér, sem er alveg hreint djöfullegt.
Svo var bakkað á mig, bæði náttúrulega meiriháttar klaufaskapur í mér með staðsetningu á bílnum svo var rigning og dimma þannig að maðurinn sem ók á sá bara ekki bílinn, við höfum að sjálfsögðu gert út um þessi mál með venjulegum leiðum og fer bílinn í réttingu á mánudaginn eftir rúma viku. Það er leiðinlegt að lenda í þessu en eitthvað er nú lítið hægt að gera í þessu.
Mikið er gott að vita að allir dagar eru ekki eins í þessu. Svo er líka gott að skrúfa í einhverjum öðrum SÖÖBum en sjálfs síns SAAB eins og við Kjartan gerðum í gær en þá skiptum við um bremsur í fína 9000 Túrbóinum, það var gaman.
laugardagur, febrúar 25
Beinar innspýtingar
Nú er svo komið að bæði ég og SAABinn erum með beinar innspýtingar, því í stað þess að ég sprauti mig 4-5 sinnum á dag með insúlíni er ég kominn með dælu sem gerir þetta sjálfvirkt að hluta. Þó ber ekki svo að skilja að ég geti hætt að mæla mig og strokið um frjálst höfuð laus við allt sem fylgir þessu en ég sé allavega mikið stærri kosti þess að hafa svona dælu heldur en að vera með sprauturnar. Það er nefninlega þannig með mig að ég nenni ekki alltaf að standa í því að sprauta mig og gera vesen. Þið sjáið líka að ég hef verið að stinga mig að jafnaði 4 sinnum á dag að jafnaði í 9 ár(og fyrir þá sem hafa gaman að reikningi eru þetta u.þ.b 13150 skipti:) þetta er kærkomin pása frá því. Ég tek þessu allavega fagnandi, nú sting ég mig bara á 3ja daga fresti í staðinn, reynsla annarra hefur líka sínt að þetta virkar enn betur heldur en hinar aðferðirnar sem hafa verið þekktar hingað til.
13150 skipti... ég væri jafnvel enn götóttari en mjólkursían sem Roy Rogers söng um hér um árið ef ég væri ekki með svona þykkt og gott skinn!
þriðjudagur, febrúar 21
Kominn úr pústi og ryðvörn
Jæja þá er pústið hætt að glamra undir bílnum , það er semsé komið 3" rör undir alveg aftur. Hann sándar nokkuð vel og þegar búið er að smíða loftinntak sem ætti að verða núna um helgina verður hægt að snúa sér aftur að tjúningum. Gaman að þessu öllusaman!!!
þriðjudagur, febrúar 14
Ég er alveg rosalega ánægður hvað þetta tókst vel með bílinn !!! Lakkið og litasamsetningin eru sérlega flott, innspýtingartölvan er meiriháttar flott græja sem ég er nú að læra meira og meira á eftir því sem ég fikta. Innréttingin í bílnum er flott og þar má hrósa Þóri fyrir einstaka lipurð í teppalagninum !
Eitt og annað er samt eftir til þess að bílinn verði fullbúinn en nú er ég byrjaður að keyra og eftir því sem ég keyri meira fæ ég betri tilfinningu fyrir bílnum, mér finnst hann láta mjög vel að stjórn vera svona mátulega stífur en ég get ekki fullprófað það fyrr en pústið kemst undir (þetta er allt hálf laust núna).
Hann vekur greinilega mikla athygli hjá SAAB eigendum að minnsta kosti því það stoppaði enn gamall maður á SAAB 90 til þess að hleypa mér inn í umferðina í dag og það var alveg mikil traffík þar sem hann stoppaði :)
þakka ykkur fyrir hjálpina um þar síðustu helgi (Þórir, Nóni, Grétar og Gunni) Það er ekkert hægt að gera svona pródjekt nema að mennirnir sem eru að hjálpa manni séu álíka klikkaðir og maður sjálfur
fimmtudagur, febrúar 9
þriðjudagur, febrúar 7
T16 í SAABinn
Komin er þessi líka fína 16 ventla vél í bílinn minn. Ég, Þórir og Nóni tókum ofurtörn heimsins í skúrnum um helgina og slitum nýju en ónýtu vélina uppúr SAABinum, ýttum bílnum mínum út, settum Tanngnjóstr inn rifum og tættum þangað til vélin var komin út á plan, settum svo þann svarta aftur inn og settum vélina í hann.
Þetta tók um 25 klukkutíma að gera og kostaðurinn kannski svona 10 þús en auðvitað veltir maður því ekki fyrir sér þegar maður á GEEEEÐVEIKAN bíl með ofurrokknum úr Tanngnjóstr um borð. Ég er allavega rosa ánægður með að vera búinn að þessu og hafa tekið þessa ákvörðun.
Þeir sem vita ekki hvað túrbóið er gott, geta sjálfsagt ekki ímyndað sér hvernig við nennum að standa í þessu en túrbóið rúlar!!!!!
fimmtudagur, febrúar 2
Þjöppumæling leiddi í ljós..
það sem nær augljóst mátti vera. Vélin var ónothæf sökum þess að þrýstingur á tveimur strokkum vélarinnar reyndist vera of lágur. Þess vegna hef ég nú látið af þessum átta ventla ævintýrum í bili og fæ 16V vélina úr Tanngjósti lánaða. Ég og Þórir erum langt komnir með að rífa vélina mína uppúr og þurfum því að ná í Tanngnjóst á morgun og slíta vélina úr honum áður en hún fer í minn.
Eftir allt þetta skrattans vesen er þetta fljótlegasta og besta leiðin til þess að fara að keyra aftur, ég hefði alveg viljað sjá hverju er hægt að ná útúr þessum átta ventlum. En ég geri það ekki í þessari lotu afþví að þetta er búið að taka alltof langan tíma og allavega 25000 kr of mikið sem ég hefði getað hugsað mér að eyða í eitthvað allt annað en viðgerð á túrbóinu sem fór í döðlur í fyrsta skiptið út af ógeðslegri miðju og seinna skiptið vegna ófullnægjandi smurolíu (sem var reyndar mér að kenna). Ég pósta vonandi einhverju skemmtilegu hérna næst.
þriðjudagur, janúar 31
Ég er svolítið seinheppinn
Já mínir kæru vinir, gleðin lætur á sér standa þessa dagana. Túrbínan kom úr viðgerð og fór strax aftur í viðgerð. Ég og Grétar vorum heillengi að græja og gera en loks komst hún á síðasta laugardag. Um kvöldið ákváðum við að taka smá rúnt til þess að sjá hvort hann keyrði bara ekki alveg ægilega vel, hann gerði það en svo þegar ég kom út í skúr á mánudeginum og ætlaði svo heldur betur að fara að láta skoða bílinn og fara síðan mont rúnt útum allan bæ vildi hann ekki ganga eðlilega og var hinn versti. Því ákvað ég að sjá hvort ekki væri allt með felldu túrbólega séð. Þá kom í ljós að hún var nærri orðin jafn slæm og þegar ég fór með hana í fyrra skiptið.
Ég ætla með smurolíusýni í rannsókn á morgun. Ég er kominn með æluna upp í háls af þessum leiðindum, þetta er sko sannarlega farið að reyna á þolinmæðina (eins gott að ég á nærri ótakmarkað magn af henni) annars væru örugglega margir búnir að gefast upp. En ég gefst ekki upp fyrir einni bílvél, hún er ekki svona flókin.
þriðjudagur, janúar 24
Ég stillti skíthælnum í BNA upp við vegg í dag, og er búinn að fara svolítið illa með hann nú þegar. Þannig er að við feðgar hringdum í meintan framleiðanda þessarar túrbínu á föstudagskvöldið og sendum honum myndir af henni í kjölfarið. Hann gat sagt okkur það strax að þetta væri ekki túrbína frá honum því hann seldi aðeins nýjar, og þær væru allar með Turbonetics logoinu. Þess vegna sendi ég póst á skítbuxann í dag þar sem ég gaf honum þann kost að senda mér aðra að öðrum kosti fengi túrbónetics alla þá vitneskju um hvernig hann geri viðskipti. Ég vona svo sannarlega að svona fyrirtæki eins og turbonetics vilji ekki stunda viðskipti við svona pappakassa sem villa um fyrir sér með því að selja vöru undir þeirra merkjum. Ég væri allavega sáttur við að sjá tölvupóst frá þeim þess efnis að vecco high performance inc væri ekki lengur þeirra díler. Ég myndi fara uppí Hallgrímskirkjuturn og hlæja tryllingslega þannig að undir tæki í Esjunni, og svo myndi ég væntanlega drekka blóð á eftir!
föstudagur, janúar 20
Túrbó túrbo túrbó
Eins og þið sem þetta lesið vitið sjálfsagt skemmdist túrbínan mín þegar ég var búinn að hafa bílinn í gangi í um 3 klst og búinn að keyra lítilræði. Þegar ég var að keyra heim úr hjólastillingu fór ég að heyra hljóð sem eru engan veginn góð. Þessi hljóð voru komin frá túrbóinu sem ég ætlaði að fá nýja frá útlöndum en fékk þess í stað gamla sem hafði fengið andlitslyftingu.
Hún var hinsvegar full af skít og drullu þannig að smurningin hafði aldrei komist þangað sem hún þarf að fara. Ég hafði samband við herra soontobedeadinagonizingpain moðerfokker sem seldi mér hana og hann gefur skít í þetta og meira að segja bara frekar stóran, en hér á eftir fara samskipti okkar;
Hi Branden!
After some two or three hours of testdriving my car, in which I installed the turbo I bought from you (the correspondance below) it blew and is totally destroyed.
The reason being heavy remains of glass-sand from the remanufacturing process. I enclose some pictures.
Now I’m a bit upset and I’m asking you to send me a NEW turbo free of charge by DHL as I do not accept another eleven weeks on delivery. I’ll send you on my cost if you like the dismantled turbo.
I appreciate your earliest response on this matter.
Kind regards,
(síðan liðu 2 sólarhringir þangað til hann svaraði)
Hann segir;
Turbonetics requires the turbo to be returned to them for repair/replacement. I don’t know if they will honor the warranty if you take the unit apart.
Thanks!
Best Regards,
ég svara;
Branden!
Could you send me your telephone number, I would like to talk to you. I’m getting bored with those e-mails.
Maybe we could reach somekind of an agreement via phone instead of all those e-mail.
For your information I had the turbo dismantled and inspected at an authorized Garrett workshop. The cartridge was absoultly full of
dirt and the lube canal totally blocked
svo kemur aftur frá honum 1 og hálfum sólarhring seinna, nákvæmlega sama svarið!
The only option is to return it to Turbonetics. I do not believe they will honor a warranty if the turbo is disabled.
Thanks!
Best Regards,Vecco High Perf., Inc
Þetta er fífl og ég get ekkert gert nema bitið í það súra epli að hafa keypt þetta af honum, reyndar leynast ráð undir hverju rifi míns góða vinar Jóns Gunnars (við getum sjálfsagt reddað þessu), en það er svo sannarlega ekki óskastaða að vera búinn að borga alla þessa peninga og hluturinn bilar eftir 3 klukkutíma þ.e.a.s tæpa 700 dollara + kostnaðinn við að koma þessu hingað heim.
Ég myndi segja að þetta væri hinn mesti bömmer.
fimmtudagur, janúar 12
Það er rétt Grétar, það er allt að gerast !
Hann Grétar var að rukka mig um nýja færslu hérna að neðan og að sjálfsögðu verð ég við því.
Bíllinn er kominn á númerin sín aftur eftir svolitla bið og fyrir stundu keyrði ég hann í hjólastillingu, en hún var ekki alveg eins og best verður á kosið. Maðurinn ætlaði bara að vera búinn með það seinna í dag og ég gæti því þessvegna farið með bílinn í skoðun í Hafnarfjörðinn þar sem allir SAABar komast í gegn þrátt fyrir að vera kannski ekki í 100% lagi, en ég á m.a. eftir að festa rafgeyminn niður.
Ég pantaði svo tíma í ryðvörn á morgun þar sem undirvagninn verður húðaður með einhverju ógeði. Þannig að fljótlega eftir helgina get ég svo farið að nota bílinn fyrir einhverja alvöru að því gefnu að veðurguðirnir reynist mér hliðhollir, því eins og glöggir lesendur hafa sjálfsagt áttað sig á þá er þetta enginn óskapar vetrarSAAB en mun samt alveg fá að keyra ef ekki eru miklir skaflar.
Þá verður nú gaman !!!
miðvikudagur, janúar 4
Vorönn að hefjast!
Ég fékk stundatöflu í dag og hún er ömurleg!! Mánudagurinn er fullbókaður frá 8:00-17:40 og svo eru þri, mið, og föstudagur allir með hátt í 3ja klukkutíma eyðu í. Fimmtudagurinn er reyndar allt í lagi en þá er ég frá 10-15 í skólanum. Þessir aular sem sjá um töflusmíði þarna uppi í skóla fá algjöra falleinkunn hjá mér, og þeir segja að ástæðan fyrir þessu sé að skólinn sé ekki nógu stór til þess að geta raðað alminnilega í töflurnar. Ég hlýt þá að spurja: Hvernig gengur að kenna í minni skólum en þessum? komast nemendur þar einhverntíma í tíma?
Þetta er skemmtilegt nám en ég verð þeim degi fegnastur þegar það er búið og ég þarf ekki að hlusta á svona rugl lengur, ef þeir tækju nú hendurnar úr skautinu á sér og reyndu að skipuleggja þetta aðeins betur hlýtur að má fá einhverja heildstæðari mynd á þetta. Bull.
fimmtudagur, desember 29
Jól, áramót, ég, vinna, hressandi!
Ég hef haft nóg að gera núna þessi jólin. Ég byrjaði að vinna í Heklu nánast strax eftir próflokin og hef líka aðeins reynt að kíkja á bílinn svona eftir því sem ég get. Hinsvegar er þetta mun meiri vinna heldur en ég hafði gert mér grein fyrir eins og tildæmis í kvöld, en þá kom ég heim klukkan 22. Málið er að við erum að taka upp vél í Grindavík sem við vorum alveg að verða búnir með þegar upp kom vandamál sem á þessari stundu er ekki vitað hvað er.
Þessi vinnutörn hefur líka sína kosti en þeir eru að hún gefur sæmilega í aðra hönd sem nýtist vel þegar maður á SAAB. Einnig hefur mér miðað vel í að koma bílnum í skoðunarhæft ástand en það gæti orðið fljótlega eftir áramótin sem hann dytti í gegn um skoðun og þá er líka hægt að fara nota kvikindið eitthvað.
Heyrumst!
