mánudagur, desember 18

Ég held að það hafi aldrei liðið jafn langt á milli blogga hjá mér. Er þetta ekki að verða eitthvað úrelt (bloggskrif)? Hvað finnst ykkur? En jæja fyrst ég er byrjaður þá get ég sagt ykkur sitt af hvoru.

Ég ákvað að reyna aðeins betur við gírkassamálin sjálfur áður en ég fel einhverjum öðrum að reyna að koma gömlu 900 bílunum yfir 100 mílurnar. Ég er búinn að smíða nýtt leguhús inní kassann úr mun sterkara efni auk þess sem ýmislegt annað er í pípunum. Ég ætla líka að kaupa aðeins meira af nýjum hlutum inn í kassann áður en hann fer saman. Þetta gerist eftir jól, þegar ég hef aftur smá tíma og pening.

Í öðrum fréttum er það að ég tók þessi líka glimrandi fínu próf og fékk ágætisútkomu úr þeim. Þetta eru síðustu jólaprófin í bili og er það hressandi. Fór svo aðeins að vinna í geðbilununarhúsinu Heklu HF en þar er ALLTAF brjálað að gera. Get eiginlega ekki beðið eftir því að þessi jól líði vegna þess að þá er lokatörnin í skólanum eftir og svo getur maður bara farið að strjúka um frjálst höfuð. Getur maður ef til vill farið að leyfa sér ögn meira svona peningalega séð. Hvað tekur svo við næsta sumar er ekki alveg komið á hreint en nokkur járn eru í eldinum.

Skrifa kannski aftur fljótlega ef einhver er sem les þetta ennþá.
Birkir

3 Comments:

At 12:44 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Þú ert hetja......nú þurfum við bara að taka eitt kvöld í skúrnum mínum einhvern tíma og hafa einn öl með.

Kv. Nóni

 
At 12:48 f.h., Blogger Tiny said...

Ég mæti í svoleiðis partý Nóni. Ef minnið brestur ekki þá á ég eitthvað slátur af vél þarna inni hjá þér. Nema hún sé komin á haugana. Ha? :D

Haltu endilega áfram að blogga Birkir. Það þarf ekkert að blogga oft á dag, bara þegar maður nennir. Það er alltaf gaman að lesa pælingar vina sinna. Hvort sem það er á þriggja daga eða þriggja mánaða fresti.

 
At 12:32 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Núna væri mjög góður tími að fara að hugleiða bloggfærslu.

 

Skrifa ummæli

<< Home