Viðburðir síðustu daga.
Ég var sæmilega duglegur um helgina. Vaknaði meira að segja klukkan níu á laugardaginn til þess að fara að vinna í bílnum. Ég var niðri frá því klukkan 10 og framundir klukkan eitt en þurfti þá að bregða mér frá. Það sem ég gerði svo restina að deginum var að fara í byko þar sem ég keypti smá dót sem kemur að góðum notum í SAAB missjóninu mínu. Um kvöldið fór ég svo í innflutingspartý til Kidda soðgreifa og Erlenar Bjarkar. Þau eru búin að kaupa alveg svaka fína íbúð og ef þau lesa þetta þvaður þá finnst mér full ástæða til þess að óska þeim til hamingju.
Á Sunnudaginn vaknaði ég svo frekar snemma. Var kominn í skúrinn klukkan 11 og hélt áfram þaðan sem frá var horfið með að hreinsa gamla ryðvörn af. Þórir hringdi svo í mig og tilkynnti mér að hann ætlaði að fá sér Pizzu og ég slóst með í förina. Að því loknu var svo haldið á vit SAAB ævintýra og unnum við með einni smá spjall pásu framundir klukkan 17. Vélarrúmið er líka orðið mjög fínt en eins og menn sem standa í svona bílaviðgerðum/uppgerðum vita þá er ansi erfitt að ákveða hvenær skal láta staðar numið í smáatriðunum, hvenær hluturinn er orðinn nægilega hreinn til þess að senda hann frá sér og hvenær maður er búinn að útrýma nægilegu ryði til þess að verða sáttur við hina endanlegu útkomu... Þetta er svona svipað og tónlistarmaðurinn sem þarf að ákveða hvenær næsta platan er tilbúin til að líta dagsins ljós.
Ég er allavega kominn það langt (finnst mér) að það er orðið tímabært að fá bílamálarann til þess að taka verkið út hjá mér. Þess vegna ætla ég að tala við hann seinnipart vikunnar, þá getur hann kannski farið að gera ráð fyrir því að bílinn sé á leiðinni til hans..
Framhaldið leggst allavega vel í mig þetta hefur gengið alveg ágætlega hjá mér og auðvitað verð ég að þakka þeim Nóna og Þóri fyrir hjálpina en án þeirra hefði þetta líklega aldrei tekist, það að taka svona bíl og gera það sem við höfum gert og munum gera er náttúrulega ekki á valdi allra. Þetta þarfnast mikillar natni og þekkingar á hvað SAAB eru æðislegir bílar því að öðrum kosti gæti maður þá gert upp Toyotu :-)
Með þetta sagt legg ég til að stofnaður verði SAAB klúbbur og það hið snarasta t.d.WWW.STI.IS(SAAB Turbo club of Iceland) nei annars OJ við viljum sko ekki verða kenndir við einhvern öskuhaug frá japan. Komið þið endilega með uppástungur.
Bless í bili
Birkir

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home