Jæja þá
Nú er búinn að vera ágætis gangur í þessu pródjekti mínu. Þórir er algerlega búinn að fara á kostum í teppalagningunni og sýna það jafnframt að hann hefur lært mikið hjá henni Höllu saumakennara í Való og engu gleymt heldur. Teppalagningin er á loka metrunum brakketið fyrir tölvuna komið á sinn stað, þannig að ekki líður að löngu þangað til framsætin fara í. Að því loknu er svosem ekki mikið eftir að innan. Hurðirnar og skottlokið koma svo úr málun núna fyrir helgi en þá á aðeins eftir að sprauta húddið.
Af vélinni er það að frétta að á allra næstu dögum verður tekin syrpa á púst og soggreinum og þær lagaðar að nýrri innspýtingu ofl.
Stefnan er því sett á miðjan September þ.e.a.s eftir u.þ.b 3 vikur. Held að það sé bara ágætt að ég nái í númeraplöturnar þá og reyni að hafa hann tilbúinn fyrir sýninguna sem verður uppi í Ingvari Helgasyni í endaðan september, þegar þeir fá Sport Combi bílinn sem er rosaflottur nýr SAAB.
Gott plan? Nauðsynlegt plan? Allavega er gott að fara að stefna að einhverju!

2 Comments:
Ja nú er ég svo aldeilis hlessa. Kannski maður ætti að hringja í Birgi Sörensen.
Það er auðvitað hið besta mál, berðu honum kveðju mína Kiddi.
Kv. Nóni
Skrifa ummæli
<< Home