Smá fréttaskot
Eins og flestir vita þá keypti ég felgur sem á var fastur þessi fíni SAAB 90. Við Þórir tókum flest úr honum sem var þess virði að hirða. Þessar felgur hafa nú fengið andlitslyftingu (glerblástur og pússerí) og þar á eftir grunn og málningu. Þó ég segi sjálfur frá tókst mér mjög vel upp með þær. Ekki skemmir heldur fyrir að nú eru komin dekk á felgurnar af gerðinni Goodyear Hydragrip sem eru vatnsmynsturð sumardekk, þau fékk ég í Heklu á fíneríis prís.
Svo kom Þórir við áðan og auðvitað urðum við aðeins að skrúfa þau undir, og get ég fullyrt að slík og þvílík unun er nú að horfa á bílinn að engu tali tekur:)
Ég hlakka til að keyrann !!! Vonandi sem allra fyrst.
Meira síðar
Birkir

2 Comments:
Gott að heyra að þinn er allur að koma til , ég veit ekki hversu mikið er í þínum úr Denna mínum :D
Allanveg er 16v sænska stálið mitt komið úr skúrinum og gengur ansi fallega þó ég þarf að tímastilla hann og mæta uppá braut að reynsluaka ;)
Denni er þessi sem hefur verið úrskurðaður látinn samkvæmt þér en það er ekki satt.. gæti gert kerru úr honum.. vera að keyra tvo saab með einn hehe , draumórar hehe
Jaaaaaaaaa....... amen.
Birkir er hetja!
Kv. Nóni
Skrifa ummæli
<< Home