Glæstur sigur í höfn!!!
Ég keppti í aftur í kvartmílunni um þessa helgi. Það voru bara tveir bílar í 14,90 flokknum að þessu sinni þ.e.a.s ég og Ingvar á Dodge Neon. Staðan var eitt eitt og við tókum úrslita rönn, en þá vildi svo óheppilega til að Ingvar þjófstartaði og því hafði ég sigur úr bítum. Ég bætti einnig tímann minn og hraðann en ég hafði áður farið á 15,177 sek og 88,?? mílum en ég sigldi niður í 15,028 á 90 mílum sem er alveg ágætt á óbreyttum SAAB. Það var gaman að keppa í gær þrátt fyrir að við værum bara tveir og svo skiptir reynslan sem hleðst inn í hvert skipti líka máli uppá frekari þátttöku, og þá vonandi einhverntíma á mínum eigin SAAB. Annars er 9000 bíllinn alveg klassa kerra, auðvitað væri gaman við setja á hann stórt púst og kannski dass af race bensíni til þess að sjá bara hvað hann kemst (kannski færa sig niður í 13,90 flokkinn) því alltaf þegar keppt er í svona sporti vill maður meira og meira en þá verður líka erfiðara að fá hlutina til þess að virka og af því hefur eigandi þessa bíls sko yfirgripsmikla þekkingu og reynslu:)
Ég er annars búinn að ákveða að láta hann Þóri kaupa fyrir mig efri A armana úti í Svíþjóð, um leið og ég get sett þá í er ekkert að vanbúnaði að setja vélina í. Um næstu helgi fer ég svo uppí víkur-ós og klára að ryðbæta þessa einu hurð sem eftir er og þá geta þeir klárað að mála heila klabbið.

6 Comments:
wicked! Nýr konungur kvartmílunar fer senn að verða krýndur! Síðan er maður að heyra að þjóðin sé á sætisbrúninni af spenningi vegna orðróms um SAAB 900
TURBO sem fer að spæna upp göturnar á næstu mánuðum!
Eitthvað heyrði ég að þjóðin væri farin að slappa aftur af í ákveðnu vonleysi eftir að þessi ákveðni 99 turbo breyttist í mótorhjól frá Japan.
Birkir, til hamingju með sigurinn, hann var verðskuldaður.
Kv. Nóni
Úúúúpss...... það var víst 900 túrbó.
Kv. Nóni
Sà ordròmur ferdast um landid langa ad Islendingar eru bùnir ad vidurkenna nyjann konung kvartmìlunnar, og hann beri nafnid Birkir grjòtapungur:)
Til hamingju Bizzi
Ærlig fortjent
JòBò
Tak skal dere ha!
Men Jon Björn ! Vi må absoulutt ta en tur til Sverige til at kjöbe en SAAB 9000 AERO för deg. Den SAABen kjörer virkelig snabbt og er over alt en virkelig bra utseende bil.
MVH.
Birkir
Heheheh.......B.Rockballs rocks bwaaahahahahaha.
Kv. Nóni Softball.
Skrifa ummæli
<< Home