Ég er farinn að halda að maðurinn í Svíþjóð sem selur þessar læsingar sé nú eitthvað meira en lítið með allt niðrumsig. Það var nefninlega þannig að hann sagði að þetta yrði til hjá honum í apríl en svo þegar ég hafði samband við hann sagði hann mér að það yrðu minnsta kosti 2 mánuðir í að þetta yrði til.
Þannig að ég er að fara setja saman gírkassa án læsingar. Það er svo sem allt í lagi ég get alveg flýtt mér hægt í sumar. Fer bara á bílnum til Svíþjóðar í haust með rassgatið fullt af peningum og set læsinguna (sem verður vonandi til þá) í hjá honum. Svarta þruman ætti því að komast á stjá einhverntíma með vorinu.
Aðrar fréttir eru þær að ég er hættur hjá Heklu í það minnsta í bili en verð að bora í sumar, næg verkefni framundan, eitt í Reykjavík, annað í Eyjafirði og svo hingað og þangað.
Ég er líka að klára skólann núna í vor en það gengur bara mjög vel hjá mér, þannig að þetta ætti bara að verða gaman.
Hef lítið meira að segja í bili
Haldiði ykkur á réttum kili

1 Comments:
Ég sá að Nóni var að setja mynd af herlegheitunum á heimasíðuna sína, lítur bara út eins og danskt. En einn galli var þó að hann setti inn vitlausa mynd. það var nefnilega önnur betri. Þ.e myndin þar sem Land Roverinn sést líka.
KV Kiddi
Skrifa ummæli
<< Home