Subaru eru ágætis bílar
Ég tók kannski dálítið þungt í árina í gær þegar ég skrifaði um Subaru, en samt finnst mér alveg sjálfsagt að halda uppi mátulegum ríg. Hann getur nefninlega verið skemmtilegur ef allir eru með á djókinu. Subaru 1800 gamli var til dæmis alveg úrvals bíll í sínum flokki, fjórhjóladrifinn og sterkur á alla kannta. Þessir bílar sjást ennþá en margir þeirra hafa þurft að láta í minni pokann fyrir ryði. Ryð er leiðinlegur fjandi. Vélarnar í þessum bílum hafa líka staðist tímans tönn. Yfirleitt varð boddýið uppétið áður en vélarnar gáfust upp. Einu svona bílarnir sem eru eftir eru nú yfirleitt í eigu smiða sem hafa ekki hugmynd um hvernig aftursætin líta út afþví að þeir þurfa pláss fyrir draslið sitt... Einum svona bíl man ég þó eftir í toppstandi. Það var gamall kall sem var alveg hryllilega leiðinlegur sem átti hann og kom alltaf með hann á smurstöðina þar sem ég vann. Hann suðaði í okkur vegna þess að honum fannst við bruðla með pappírinn. Já hann var af gamlaskólanum þar sem menn þekktu ekki pappír og þess í stað notuðu þeir gamla efnisafganga. Ég held að hann hafi haft nokkuð til síns máls það væri hægt að spara heilmikinn pappír með því að nota einhverja búta en það var samt enginn ástæða fyrir hann að vera með einhver leiðindi. Subaruinn hans var allavega fínn:) Jæja nóg um það.
Ég bar rust konverter á ryðið í vélasalnum í gærkvöldi þegar ég hafði látið í minni pokann gagnvart eðlisfræðinni og hugsaði með mér jæja, nú fer ég niður og huga að SAABinum og strax og ég hafði ákveðið þetta var ég kominn í ágætt skap.
Núna ætla ég niður í skúr að sjóða. Fylgist með !
Birkir

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home