SAAB fundur og fleira
Í gær sunnudag héldum við þriðja SAAB fundinn í sumar. Sérstaklega má þar nefna '78 módelið af 96u sem er alveg svakalega flott. Alls komu 9 bílar á fundinn og var dreifingin á milli gerða nokkuð jafnari núna en síðast. Guli 90 SAABinn mætti, 96an sem ég sagði frá hér að ofan, 3 mættu á 900 turbo 3 á 9000 T og ekki og svo loks Nóni sem var á 9-5 unni. Svo var tekið heilmikið spjall þar sem ýmis málefni voru rædd og að því loknu var ekið um borgina. Vakti það nokkra athygli mína að fólkið á Laugarveginum þar sem við fórum um í halarófu brosti út í annað þegar það sá okkur og ég held reyndar að 96an hafi haft vinninginn í glápi, þetta var allavega mjög gaman. Og þakka ég þeim fyrir sem mættu á fundinn að þessu sinni.
Myndir gætu dottið inn á síðuna í kvöld eða á morgun.
En að mínum SAAB! Nú erum við byrjaðir að smíða og gera í sambandi við eldsneytiskerfið. Hurðir og skottlok er komið úr málun og skottlokið komið á. Einnig er framrúðan komin í og sömuleiðis stólarnir. Nokkur vinna er ennþá eftir við skottlokið en það ætti að hafast á eins og tveimur góðum kvöldstundum. And now for the million dollar question: standast áætlaðar dagsetningar? Að öllum líkindum ekki, tíminn líður svo rosalega hratt. Kiddi vinur minn verður því kannski bara að bíða lengur eftir því að fara að sjá mig úti á nesi í heimsóknum, en hann veit sem er að ég dvel löngum stundum í bílskúrnum og þar er hægt að ná af mér tali:-)

7 Comments:
Já nei nei ég bara bíð. Hafðu ekki áhyggjur af mér. Set bara kaffið í örbylgjuna þegar þú kemur.
Það var víst einn í viðbót, Svabbi kom með 9000i þannig að þeir voru 10. Maður má ekki gera lítið úr þessu stórkostlega verki sem þú hefur gert með góðra manna hjálp en staðreyndirnar tala engu að síður, http://www.traderamotor.com/showObject.aspx?id=120131
Þarna er einn æðislegur ´84 á 10.000 sænskar, nema að þetta eigi að vera 100.000- held samt varla.
Kv. Nóni
Já ég gleymdi víst einum fínum SAAB sem mætti á hittinginn, ég bið Svabba afsökunar á því!
Jú Jú þetta varð mun meira en upphaflega var ráð fyrir gert, en eftir á að hyggja hefur þetta verið mjög gaman, fínn félagsskapur og óhemju lærdómur!
Kv. Birkir
thid erud nù rosalegir saab kallar stràkar mìnir:) gangi thèr vel med the black beauty, èg hoppa upp ì vèl thegar fàkurinn er kominn à gøtunna!
kv. Jòn Bjõrn
by the way bizzi minn, èg verd ad fà ad sjà meiri myndir!!
c ya, JB
Hvernig er með myndirnar frá samkomunni?
Nóni
Æ sorrý þær gleymdust !!!
Ég pósta þeim inn á morgun.
Birkir
Skrifa ummæli
<< Home