Jól, áramót, ég, vinna, hressandi!
Ég hef haft nóg að gera núna þessi jólin. Ég byrjaði að vinna í Heklu nánast strax eftir próflokin og hef líka aðeins reynt að kíkja á bílinn svona eftir því sem ég get. Hinsvegar er þetta mun meiri vinna heldur en ég hafði gert mér grein fyrir eins og tildæmis í kvöld, en þá kom ég heim klukkan 22. Málið er að við erum að taka upp vél í Grindavík sem við vorum alveg að verða búnir með þegar upp kom vandamál sem á þessari stundu er ekki vitað hvað er.
Þessi vinnutörn hefur líka sína kosti en þeir eru að hún gefur sæmilega í aðra hönd sem nýtist vel þegar maður á SAAB. Einnig hefur mér miðað vel í að koma bílnum í skoðunarhæft ástand en það gæti orðið fljótlega eftir áramótin sem hann dytti í gegn um skoðun og þá er líka hægt að fara nota kvikindið eitthvað.
Heyrumst!

1 Comments:
Talandi um SAAB þá hefur þetta myndband http://www.hugi.is/hahradi/bigboxes.php?box_id=51208&f_id=1488 að geyma með fallegri SAAB-a sem sjá má, og með færari ökumönnum!
Skrifa ummæli
<< Home