föstudagur, október 28

Tími á raus

Jæja um síðustu helgi vildi bíllinn minn ekki fara í gang afþví að hann fékk ekkert bensín. Ég varð hugsi en hugsaði nú samt með mér að þetta gæti nú ekki verið eitthvað flókið fyrst hann var búinn að keyra helling um daginn. Þegar bílinn kom svo aftur heim var bílskúrshurðinni lokað og ekkert gerðist fyrr en í gærkvöldi, en þá fór ég niður og tékkaði aðeins á þessu. Auðvitað var bilunin ekki stór, það hafði bara gleymst að setja plúsinn á bensíndæluna aftur. Svo settist minns inn í bíl og fór að reyna að starta. Það gekk ekki. Frekari tilraunir verða gerðar á þessu núna um helgina þar sem ég hefði helst viljað koma á bílnum næsta sunnudag á SAAB klúbbs fundinn.



Annars er það að frétta að nú fer að styttast í að ég greiði mönnunum á sprautuverkstæðinu fyrir sína vinnu, sem er bara gott. Hef ekkert meira að segja í bili nema að ég held að þeir hjá kvartmíluklúbbnum hafi verið rosalega heppnir með á ákveða ekki að halda sýninguna um þessa helgi í skíta kulda og snjóföli. Kuldi og rok eru viðbjóður.

2 Comments:

At 12:12 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Tími kominn á að menn taki ærlega í hnakkadrambið á sér sjálfum og rífi höfuðið út úr afturendanum á sér. Og svo er líka hressandi að kaupa kertaþræði, og tengja þá rétt.


Kv. Nóni

 
At 11:32 f.h., Blogger Tiny said...

Svo hefðu menn nú getað séð SAAB performance team með berum augum í sumar: http://82.221.56.31/gallery/kinnekulle/PICT0359

Gæðin á vídeóinu eru samt óneitanlega töluvert betri en á mínum og þá sérstaklega gæðin á myndatökunni. :-s

 

Skrifa ummæli

<< Home