mánudagur, nóvember 14

SAAB í salt um óákveðinn tíma!

Í dag pantaði ég tíma í hjólastillingu fyrir bílinn. Mig minnti að ég ætti einhverstaðar millilegg (sem fara undir efri spyrnuna) sem mig vantar til þess að þeir gætu stillt bílinn vel fyrir mig. Þau fann ég ekki, en kallinn sem ég talaði við sagði mér að hann gæti svosem smíðað eitthvað þarna undir ef ég fyndi ekki þessi millilegg mín.

Jæja, í gær tókum við pabbi rosa vel til í skúrnum því nú er hún Hilda systir að fara að flytja sína fínu fjölskyldu upp í Sóleyjarrima í nýja blokk þar, en hana vantar geymslupláss á meðan þessu stendur og þá er bílskúrinn fínn. Þannig að SAABinn þarf þá að fara að standa úti, ég hefði viljað láta ryðverja hann áður en hann færi út svona í lengri tíma og áður en ég léti gera það vildi ég láta hjólastilla, en mér finnst það rökrétt uppá að þér séu ekki allir löðrandi í einhverju ryðvarnarógeði við það.

Svo fór ég að reyna að setja í gang áðan, það gekk ekki, hann tók aldrei við sér einusinni, það fannst mér verulega skrítið þar sem hann var nú búinn að keyra einhverja 50 km núna yfir helgina og frekar vel að mínu mati. Það má ljóst vera að ég bíð ekki mönnunum í hjólastillingunni uppá að stilla bíl sem keyrir ekki sjálfur, er töluvert mikið vanstilltur og þarf að smíða einhver djöfulsins undirlegg fyrir efri spyrnurnar í. Þannig að þessi tími verður afpantaður í bítið.
Einnig hef ég ekki haft tíma til þess að laga það sem laga þarf fyrir utan innspýtinguna s.s. ljós og rúðupiss og fleira til þess að koma bílnum í gegnum skoðun en ég hafði viku eftir að ég var búinn að taka númerin út til þess að koma honum í skoðun, þessi vika er liðin.

Því er nokkuð ljóst að ég er að leiðinni niður í skoðunarstöð með númerin af bílnum mínum á morgun, þar sem þau verða lögð inn. Ég er búinn að eyða alltof miklum tíma í þetta núna í haust á kostnað lærdóms, hver vonbrigðin hafa rekið önnur og ég er þreyttur á þessum barningi, þessu verður ekkert reddað á einni helgi eins og ég hef svo oft talið mér trú um sérstaklega ekki þegar tvær vikur eru í prófin. Hér verður því numið staðar í bili, kannski kemst SAABinn á götur Reykjavíkur með hækkandi sól.

Nú er þetta ákveðið og ekki orð um það meir.
Birkir

2 Comments:

At 10:30 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Ég ber ábyrgð á bílnum.......

 
At 5:21 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

OgHananú........þú getur þetta nú samt allt.


Kv. Nóni

 

Skrifa ummæli

<< Home