Töluverðu síðar, töluvert breyttur
Jæja loksins er eitthvað að gerast í SAABheimum...
Ég setti driflæsingu í gírkassann í vor áður en ég setti vélina niður, þeir hjá abbottracing í bretlandi áttu nefninlega svoleiðis. Skemmst er frá því að segja að bíllinn keyrir eins og go-kart eftir þessa breytingu. Þvílíkur munur á einum bíl.
Svo setti ég undir mig hausinn núna á dögunum og setti í bílinn bremsur af nýrri gerð, reyndar bara búinn að framan en afturöxulinn er í sandblæstri núna as ví spík. Dekkin færast með þessari breytingu tommu utar en á eldri felgunum og verður þetta því orðinn formúlubíll áður en um langt líður, eina vesenið er að nú er vetur og göturnar ekki þurrar. En þá er gott að bregðast við með því að spóla svo mikið að ísinn bráðni..
Meira tjún er ekki á dagskrá afþví að túrbínan getur ekki meir og því er tilvalið að eyða pening í að kaupa svosem eins og Super Aero felgur, stóran spoiler á skottið og svona eitís afturrúðuskyggni. Eigum við að ræða það eitthvað???
Bless í bili

1 Comments:
Á ekki að fara að borga fyrir leiguna á bílageymslunni minni.
Þetta verða 15000 á mánuði og mér telst til að það séu komnir 10 mánuðir síðann bíllinn fór inn.
150 þúsund væni.
Kær kveðja Þórunn Bj.
Skrifa ummæli
<< Home