fimmtudagur, október 14

Hressandi fimmtudagur

Ég fór uppá spítala í dag í tékk. Það var ágætt. Ég og Arna læknir ræddum ýmis mál er snerta sykursýki og fylgikvilla tengdum henni. Langtíma gildin hjá mér eru á ágætum gír en alltaf mætti bæta sig aðeins. Það væri til dæmis afar fróðlegt að sjá hverju breytti ef Birkir færi nú í líkamsrækt reglulega. En ég á bíl eins og þeir sem lesa þetta hafa eflaust orðið varir við sem er mikill tímaþjófur. Eins hef ég töluverða viðveru í skólanum er búinn klukkan 17:40 tvisvar í viku og hina dagana kl 16:00. Þetta verður eitthvað að breytast ef ég á að koma fyrir rækt kannski eins og 3-4 sinnum í viku. Þess vegna er planið að taka því aðeins rólegar eftir jól, koma þá ræktinni fyrir á prógramminu. Það skiptir mjög miklu máli að vera í góðu jafnvægi á sínum yngri árum því annars er maður líklegri til þess að verða gamalmenni langt fyrir aldur fram. Listi fylgikvilla er langur og satt að segja líst mér bara ekkert á að fá þá. Ég verð að fara hætta þessu horngrýtis sælgætisáti. Svo ræddum við líka um insúlín pumpur sem græddar eru undir húð og sjá um að skammta manni lyf. Ég er kominn á lista hjá henni þannig að góðar líkur eru á því að ég gæti fengið svona útbúnað á næsta ári sem væri snilld. Ef þetta gengi eftir myndi ég þá geta hætt að sprauta mig sem ég geri núna u.þ.b 4-5 sinnum á dag og langtíma gildin lækkuðu þá jafnframt.

Að SAAB málum er helst í fréttum að bílasprautarinn ætlar að koma á morgun(föstudag) hann gat það nefninlega ekki í dag vegna anna. Verður hann væntanlega á ferðinni um klukkan fimm. Ég pósta þá einhverju skemmtilegu en núna ætla ég að fara að hætta þessu. Kv. Birkir

1 Comments:

At 1:35 e.h., Blogger Tiny said...

Þú kemur aftur í karate og ekkert kaftæði! Engin pressa samt ;)

En ælti það sé samt ekki best fyrir þig að einbeita þér að þol íþróttum? Hjólreiðum, hlaupum, sundi eða einhverju þannig? Allt hlítur samt að vera betra en ekkert, og karate er auðvitað miklu mun skemmtilegri en aðrar íþróttir.

 

Skrifa ummæli

<< Home