þriðjudagur, desember 28

Vinstra bretti

Ég skar úr vinstra brettinu núna áðan og bjó til bút úr fína brettinu sem ég fékk frá Danmörku. Ég bjó líka til bút í innra brettið en ég fór á smurstöðina og fékk að nota skrúfstykkið þeirra til að beygja, það er glatað að gera þetta allt á hnjánum í skúrnum. Tókst þetta með hreinum ágætum en núna er lítið eftir. Það þarf að sjóða bitann undir að framan og laga brautina fyrir hilluna þar sem hátalararnir koma til með að verða að aftan, þar festing brotin en ekkert sem ekki er hægt að laga með smá suðupunkti. Þegar þetta er búið verður hann þrifinn hátt og lágt og auka ryðvörn og drulla sem eftir er fjarlægð.

Ávísunin fyrir túrbíunni fínu er lögð af stað til ameríku og býst ég við að hún komi til landsins strax í byrjun næsta árs. Skemmtilegt er það.

Kv. Birkir

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home