Prófin búin!
Þá eru prófin búin að þessu sinni, og ef heldur fram sem horfir þá verð ég með fína meðaleinkunn. Hún er allavega 7,8 útúr því sem ég er búinn að fá að vita. Þá get ég nú aðeins farið að einbeita mér að SAABinum á milli þess sem ég hjálpa henni móður minni að hengja upp jólaskraut...
Harði pakkinn frá mér til SAABsins verður túrbína sem ég er að versla af ebay, hún er nokkru stærri en sú sem upphaflega kemur með bílunum en það er fínt uppá framtíðina að gera (en hún felur í sér tjúningar). Þá keypti ég líka glærar stefnuljósalinsur frá svíþjóð en lækkunargormana sem ég keypti líka þaðan fæ ég að gjöf frá mínum kæru foreldrum.
Síðan fór ég allt í einu að hugsa núna bara á meðan ég var að skrifa þetta hérna að ofan, hvað á ég eiginlega að ganga langt í að eyða í bílinn? Er ef til vill alveg hægt að réttlæta svona prójekt með því að segja sem svo, ég hef mjög gaman að þessu? Ég er ekki að eyða neitt um efni fram? Ég er örugglega ekki að fara eyða neitt meiri pening í þetta heldur en margir á mínum aldri hafa drukkið fyrir?
Ég held að þó svo sé skynsamlegra að hafa þá peninga sem ég hef eyrnamerkt þessu verkefni inni á bók og kaupa íbúð fyrir seinna þá geti þetta líka komið sér að góðum notum fyrir mig sem ætla að starfa í e-u svona véla, járna, og rafmagnsdóti. Allavega sá ég það að ég hafði svolítið forskot á suma þá ágætu pilta sem byrjuðu á sama tíma í náminu og ég. Það skrifast allt á það að ég hafði hjálpað Þóri heilmikið með sitt vélaprójekt sem var að mínu mati skemmtilegt þó erfitt á köflum.
Ég er því fullviss um að horfa með þannig augum á þetta verkefni, að vera ekki alltof mikið á spá í krónur og aura. Ég hætti bara að eyða þegar ég finn að gott sé að láta staðar numið og snúa sér að öðru.
Jæja þetta er allavega að verða dýpsti texti sem ég hef skrifað hér á þessa síðu. Það má alls ekki lesast útúr þessu að ég sé eitthvað að gefast upp á þessu, þvert á móti. Heldur var ég bara að velta þessu fyrir mér svona almennt. Jæja er þetta kannski orðinn óttaleg langloka og rugl í mér? Hvað um það þið megið koma með pælingar ef þið viljið hér að neðan.
Kv. Birkir

3 Comments:
Hver þarf íbúð þegar hann á SAAB?
Hver þarf íbúð þegar hann á SAAB?
Skyld´ða vera jólagormar durururu......
ætl´ðað séu lækkunargormar durururu......
og mamm´og pabbi glott´í laum´í kampinn.......
Jólakveðja, Nóni
Skrifa ummæli
<< Home