Próf
Prófatörnin stendur yfir núna og ég er búinn með suðu og eðlisfræði. Þessi próf gengu svona uppá 6-8 og er það alls ekki neitt slæmt. Rafmagnsfræðin er á morgun og hana þarf ég að líta vel á. Vonandi gengur það líka að óskum. Svo fer ég í tvö próf á mánudaginn, nánar tiltekið stýritækni og iðnteikningu. Þau gætu orðið ansi strembin m.v. hvernig gengið hefur verið í haust.
Að öðru: Dollarinn er kominn í rassgat. Ætti ég ekki bara að slá í eina túrbínu, það er ekkert vit í að fara að láta laga gömlu fyrir 45 - 55 þús ef ég get fengið nýja í USA fyrir eitthvað svipað eða minna.
Jæja best að einbeita sér að prófunum.
Bless í bili, Birkir

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home