Kominn heim!
Den turen var trävlig. Jäg fik en SAAB som Hyresbil i statoil og gik up til smålanda til at henta mina reservdelar. Já þetta kann maður nú:) Sem sagt góður túr til Svíþjóðar. Fyrir þá sem ekki klóra sig fram úr sænskunni hér að ofan fengum við pabbi okkur SAAB 93 og keyrðum svo áleiðs til Lagan þar sem Scandium er. Kallinn hjá Scandium sem er bara bílasala í dag gat nefnilega ekki sent hlutina til mín niður til Lundar vegna þess að hann hafði ekki átt eitthvað sem ég pantaði. Hann fékk þá svo bara á föstudaginn í síðasta og þá var orðið of seint að senda það í tæka tíð.
Frá Lundi eru um 180 km til Lagan og þar sem ég hafði rekið augun í að hægt væri að leigja SAAB fyrir 830 sek með innif. 500 km akstri kom ekki til mála að fara á Raminum (þó hann sé ágætur). Upphaflega stóð til að skila bílnum þegar við kæmum til baka í Lund, en pabbi kolféll svo fyrir SAABinum að hann ákvað að framlengja leigunni sem var æðislegt:)
Christer hjá Scandium er sko fínn kall, hann gat útvegað mér allt sem ég þurfti og rukkaði mig um 500 sek fyrir sem er ekki stórt. Ennfremur sagði hann mér að hann ætti einhver nokkur airflow kitt eftir á 2 dyra 99ur en myndi að öllum líkindum ekki framleiða fleiri vegna þess að það væri mikið vesen að koma upp mótunum, en hann útilokaði það ekki að framleiða meira ef hann fengi einhverjar 20 pantanir eða eitthvað svoleiðis.
Borinn hjá pabba er óðum að komast í nothæft ástand og býst hann við að fara af stað niður á fimmtudag - föstudag. Það á vonandi eftir að ganga vel hjá honum, því best væri ef hann gæti bara farið að snúa sér meira að svona verkefnum sem gefa eitthvað í staðinn fyrir að þurfa alltaf að ganga á eftir einhverjum hálfvitum sem vilja fá allt fyrir ekkert hérna heima, það er alveg með ólíkindum að sumir haldi að þeir þurfi ekkert að borga ef mistekst. Jæja svona er mörgum íslendingum lifandi lýst..
Jæja við fórum til Malmö með mömmu og hún skoðaði og skoðaði og keypti líka smá. Ég fíla malmö, skemmtilegur staður og mér sýndist líka að verðlagið væri ekki neitt í líkingu við það sem gerst og gengur á Strikinu. Við fórum nefnilega þangað líka en alltaf er jafn gaman að koma til Köben. Við fórum í Tívolí um kvöldið og mannmergðin og stemningin var alveg frábær. Ljósadýrðin var mikil og svo var gott veður, logn en kalt, upplagt að fá sér kaffi.
Jæja svona fín var þessi ferð í stórum dráttum. En nú tekur bara við alveg massívur lærdómur og mikil yfirseta. Það þarf nefnilega eitthvað mikið að gerast til þess að ég ná þessu öllusaman um jólin ég vona það svo sannarlega. Ég nenni nefnilega ekki að sitja í skóla yfir einhverjum 16 einingum ef svo illa færi að ég félli nú í einhverju. Þetta kemur allsaman í ljós. Einnig hefur sú hugsun skotið upp kollinum að ég taki mér smá pásu frá skóla. Ég er að verða 23ja ára og hef ekki unnið vinnu svona samfleytt í 1 ár einusinni. Vi får at se som vi siger på svenska, norska og dansk-a
Kv. Birkir

1 Comments:
blessarr,
mér lýst ekki á að þú takir þér frí, áður en þú klárar þennan vesælis vélskóla mar'. er það ekki rétt hjá mér að þú getir klárað hann á 2,5 árum? ef svo er þá borgar sig ekki að hætta í miðjum klíðunum... þú hefur nefnilega svo mikið,... meina græðir á því að hafa verið í skóla áður, ég meina hefur ekkert stoppað... vona að þú skiljir pontið..
kv. Gummi Gísla
Skrifa ummæli
<< Home