mánudagur, janúar 17

Hurðirnar mínar og topplúgan!

Eftir góða rispu um daginn í pródjektinu góða fór ég aðeins að spá í hvort mætti bjarga hurðunum mínum og topplúgunni. Hef ég komist að eftirfarandi: Hægri hurðin er ónýt, ég tók því allt sem vert var að hirða innan úr henni eins og rúðuhalaramótorinn, spegilinn og samlæsinguna sem var reyndar ekki virk. Gaman væri að stinga honum í samband við fína spennubreytinn hans Þóris og athuga hvort þetta er eitthvað meira heldur en bara skítugir plöggar eða svona minniháttar vandamál sem hægt væri að leysa.

Vinstri hurðin er miklu betur farin, reyndar er smá dæld í henni en ekkert sem væri ekki hægt að laga, ég tók einnig innan úr henni svo auðvelt sé að sprauta hana. Reyndar var eitthvað leiðinleg á henni lömin, ef opnað er of mikið þarf að beita afli til þess að loka henni, þetta er algengt vandamál með þessar hurðir.

Topplúgan er líka afspyrnu ónýt, það er nokkuð ljóst að vatn hefur legið í "innra byrðinu" á henni og haft nægt súrefni til þess að mynda járnoxíð og skemma.

Af þessu hef ég samt engar áhyggjur redda mér bara nýjum pörtum (á reyndar aðrar hurðir), en topplúguna þarf ég að finna, það verður nú enginn stór höfuðpína. Anoðer dei anoðer dollar eins og vitur maður sagði.

Að síðustu fer vélin að fara í yfirhalningu, þannig að nú fer hver olíudropinn að verða síðastur til þess að leka af henni (hún er reyndar tóm) en það þarf samt ekki að þýða það að hún leki ekki olíunni:) Góður maður í Kópavogsbæ hefur skotið skjólhúsi yfir vélina mína á meðan upptekt fer fram en bílskúrinn sá er þeim lúxusi gæddur að hafa vinnuborð í sér, sem er gott.

Jæja, síðar
Birkir

1 Comments:

At 12:43 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Það er gott að búa í Kópavogi......


Kv. Nóni

 

Skrifa ummæli

<< Home