Nýtt SAABár
Árið sem nú er liðið var bara nokkuð skemmtilegt ár. Það endaði allavega með pompi og prakt í veislu sem var þræl skemmtileg. Ég hitti bílamálarana í lok ársins vegna þess að amma hafði lent í óhappi og þeir sögðust vera tilbúnir að taka bílinn fyrir mig um leið og ég væri til með hann. Mikið er gaman að sjá fyrir endann á vinnunni með boddýið þó svo að viðgerðum sé ekki alveg lokið því það á eitthvað eftir að eiga við hurðirnar og húddið, en það kemur síðar. Einnig get ég ekki beðið eftir túrbínunni ekki það að hún eigi eftir að komast í brúk strax bara skemmtilegt að fá eitthvað performans.....
Það verður gaman að sjá hvað þetta ár ber í skauti sér. Að lokum vil ég bara óska þeim sem þetta lesa velfarnaðar á nýju ári og svo náttúrulega vil ég að allir mínir vinir sem ekki aka um á SAAB sjái að sér og kaupi sér einn. Allavega er ég búinn að sjá einn sem mig langar í til viðbótar en fyrst klára ég nú þennan sem ég á núna.
Kv. Birkir

4 Comments:
Ég hefi verið að velta fyrir mér hvernig bíl ég eigi að kaupa á þessu ári, vegna þess að við Sigga höfum jú ákveðið að endurnýja fararkost okkar á þessu ári. Að vandlega athuguðu máli er SAAB núna efstur á lista. Hver veit nema draumur þinn um að fleiri félagar þínir aki um á SAAB á þessu ári. Kv. Grétar Dór S.
Frábært, við finnum einhvern góðan handa þér og frúnni.
Kv. Birkir
Híhíhíhíhí....þér gengur vel að breiða út fagnaðarerindið.
Kv. Nóni
Er ekkert að gerast? Segðu fréttir af þeim rauða, nú er maður að verða spenntur og þráir að fá að vita hvort ekki líði að sprautun.
Hér er einn góður....
http://cgi.ebay.com/ebaymotors/ws/eBayISAPI.dll?ViewItem&category=6383&item=4517164828&rd=1&ssPageName=WDVW
Annars eru komnir nokkrir nýjir á www.bilasolur.is
Kv. Nóni
Skrifa ummæli
<< Home