Helstu fréttir
Jæja þá. Ég fór uppí Víkur-Ós í gær, þeir voru byrjaðir á bílnum mínum en þó gengur þetta á hraða snigilsins. Frambrettið var komið á og voru þeir eitthvað búnir að eiga við hægri hlið bílsins líka. Miðað við hvernig þetta gengur hjá þeim núna á ég ekki von á því að þeir hafi það af að klára þetta fyrir vikulokin næstu.
Ég náði líka í aðra vél í bílinn minn í gær til Davíðs Stefánssonar SAAB manns með meiru. Við nánari eftirgrennslan reyndust vera pyttir í blokkinni minni og hún því nærri ónothæf. Heddið sem ég átti var líka talsvert skemmt, þannig að ég er búinn að ákveða að nota vélina sem í fékk hjá honum.
Ég fékk líka rúðurnar mínar til baka í gær úr filmuísetningunni. Þetta er mjög flott, ekkert mjög dökkt og held ég að þetta fari bara ágætlega við framrúðurnar sem eru örlítið reykaðar original.
Eitt hef ég líka kannað betur frá því síðast en ég og Nóni mældum stimpla með stöngum og komumst að því að munurinn á þyngdinni er fyrst og fremst fólginn í stöngunum. Nýrri blokkirnar þ.m.t nýja blokkin mín eru með þyngri stöngunum þannig að munurinn á stimplunum sjálfum er sára lítill. Sveifarásinn í nýrri túrbóvélunum ætti þá þar af leiðandi að vera léttari ef við gefum okkur að þyngd andvæganna sé sú sama, en það er bara ekkert gefið hér í þessum heimi þess vegna þarf að vikta sveifarásana. Best að taka með sér baðvog næst í skúrinn.
Síðar
Birkir

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home