miðvikudagur, janúar 26

Dagens Nyheter !

Í dag fór ég uppí Víkur-ós þar sem ég ætla að láta mála SAABinn. Og þeir vildu taka hann núna á föstudaginn. Yes siry Bob. Bílinn er á leið í málun á föstudag.....Þarf ég að taka léttan skans á honum á morgun og semja svo annað hvort við Nóna eða Kjarra um að lána mér SAABinn sinn svo ég geti farið og leigt mér kerru og farið með hann. Því að auðvitað gengur ekkert annað en hann fari öðruvísi á staðinn nema í fylgd einhvers SAABs.

Annar hlutur einkar ánægulegur gerðist í dag. Ég fór aftur á stúfana í atvinnuleit. Ég byrjaði á því að fara í Kælismiðjuna Frost, þar sem ágætis náungi tók á móti mér. Sagðist hann ekkert vera byrjaður að pæla í sumarstarfsmönnum ennþá en tók þessu bara vel samt. Þegar það var búið fór ég svo í Heklu nánar tiltekið á vélaverkstæðið. Þar gat maðurinn sem sér um þessi mál ekki tekið á móti mér en ég fyllti bara út svona stafsumsókn. 45 mín ca, eftir að ég fór þaðan hringdi svo síminn hjá mér og maðurinn sem tók við umsókninni búinn að fara yfir málið. Kom svo í ljós að hann þekkir pabba; sagðist hann kannast við pabba fá því að hann var yfirmaður á Ísbor sem þá var og hét. Við tókum saman stutt spjall og það varð úr að ég á að tala við hann aftur um miðjan febrúar. Ég túlkaði það þannig að það væru miklar líkur á að hann hefði eitthvað fyrir mig að gera í sumar og það væri bara alveg frábært.

En eitt er víst, minn fíni SAAB er sko að fara að fá lakk á sig og eftir það verður bara gaman. Brummm Brum BBBBRRRRRUUUUMMMMM !!!!!

2 Comments:

At 9:27 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Heitir maðurinn nokkuð Grétar?

Kv. GDS

 
At 11:58 f.h., Blogger kuttson said...

Ef þú ert að tala um manninn hjá Heklu sem ég geri ráð fyrir, þá heitir hann Ólafur G Jónsson. Veit ekki hvað G stendur fyrir. Hann er þjónustustjóri á vélasviði.
Kv. Birkir

 

Skrifa ummæli

<< Home