mánudagur, janúar 24

Atvinnuleit

Um þessar mundir er ég í atvinnuleit. Ég er búinn að fara á allnokkra staði s.s Kistufell, Vélaland, Framtak og svo einhver fyrirtæki í kælitæknibransanum. Ég veit ekki með ykkur sem hafið staðið í svona en einhvernveginn fæ ég það mjög sterkt á tilfinninguna að þessi sumarstarfamarkarður sé að mjög stórum hluta bara einhver klíkuskapur.
Tökum sem dæmi manninn sem ég talaði við uppí í Vélalandi, eftir að ég hafði kynnt mig og sagt honum hvað ég væri að hugsa byrjaði hann á því að þegja og bara alveg heillengi, ég stóð þarna eins og illa gerður hlutur fannst mér. Eftir þögnina sagði hann: ja við erum nú eiginlega alveg hættir í þessum skipabransa! Mín spurning sem ég gat ekki hugsað upp fyrr en löngu eftir að ég var kominn heim aftur er svona: og síðan hvenær störfuðu vélstjórar og vélstjórnarnemar eingöngu við eitthvað sjávarútvegs tengt?
Kannski hlæ ég og skrýki ekki nóg í svona viðtölum og hef kannski ekki nægan sannfæringarmátt í að segja mönnunum að ráða mig í vinnuna, ég sé nefninlega sá besti sem þeir gætu hugsað sér:)
Það gæti einnig hugsast að ég hafi náttúrulega ekki nein fyrri störf við svona smiðjur í farteskinu, allir vilja nátturulega vana menn. Bílskúrinn og svo að verða 2 ár í smíðum í skólanum er mín eina reynsla. En ef maður byrjar ekki einhversstaðar ,hvar byrjar maður þá?
Svo er eitt í viðbót, á ég ekki að þilja upp allt sem ég hef unnið við og lært? Á ég kannski ekki að vera skrifa að ég sé með stúdentspróf? Gæti það virkað öfugt þannig að menn hugsi; já já þessi vill nú bara sitja á rassgatinu og vera í skóla, hafa það fínt? Þetta væru náttúrlega fordómar af verstu sort en ég hef aðeins rekið mig á svona karaktera sem detta í þennan gír hérna: Bíddu ert þú ekki búinn að vera svo æðislega lengi í skóla? áttu þá ekki að kunna þetta allt (prumpu og sjúga uppí nefið hljóð).

Jæja það þýðir víst lítið að sitja heima og lesa, ég held áfram alveg ótrauður þó viðbrögðin hafi verið misjöfn. Ef þið lesendur hafið einhvað um þetta að segja eða teljið ykkur kunna einhver ráð þá væru þau vel þegin. En að öðru.

Nú er ég nefninlega búinn að rýfa minn fína SAAB mótor alveg í spað. Hann er í alveg ágætu standi þ.e.a.s. bullur, strokkveggir og sveifarás. Strokklokið er ekki alveg jafn æðislegt, hefur sennilega hitnað einhverntíma upp fyrir eðlileg mörk, einnig var smá blámi á stangalegum sem rökstyður þann grun okkar Nóna.
Boddýið fer núna efir næstu helgi í málun. Það verður geðveikt. Ég er líka alltaf að bíða eftir túrbínunni minni, þætti mjög skrýtið ef hún fer ekki að láta sjá sig. Jæja en ég skrifa meira þegar fréttnæmir atburðir gerast.

Birkir

3 Comments:

At 11:32 f.h., Blogger Tiny said...

Ég held að þú hafir alveg hitt naglann á höfuðið með þessu um klíkuskapinn. Á meðan ég var ennþá í skóla þá voru mín sumar djobb alltaf í gegnum klíkuskap og þannig held ég að þetta sé bara hér á landi.

Annars er bara að halda áfram og gefast ekki upp, og taka fram alla þá kosti sem þú hefur til brunns að bera. Stúdentspróf og annað (t.d. haldgóða þekkingu á Saab/bílvélum). Gangi þér vel.

 
At 12:57 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Ég styð þá kenningu ykkar að sumarstörf fái maður nær eingöngu í gegnum klíkuskap.

Sumir á sama stað og ég í laganáminu eru farnir að vinna á lögfræðistofum; en það er þá í gegnum klíku, vinnan felst aðallega í ljósritun og kaffiuppáhellingum og greidd eru lágmarkslaun. Ekki hefi ég áhuga á því.

Annars hefi ég heyrt að góður undirbúningur fyrir atvinnuviðtal sé einn veigamesti þátturinn í atvinnuleit. Einnig skiptir máli að tiltaka allt sem maður hefir reynslu af eða hefir afrekað: Kladdaberi í 10. bekk, Bossanova- bandið, bókhaldsvinna hjá Alvarr usw. Auðvitað áttu að nefna stúdentsprófið; það er viss staðfesting á því að þú getir lært hvað sem er.

Gangi þér sem best,
Kv. GDS

 
At 1:44 e.h., Blogger kuttson said...

Við þetta má bæta að ég er yfirleitt spurður hvort ég sé héðan úr bænum. Þarna held ég að menn séu yfirleitt að fiska eftir því hvort þeir fái nú einhvern duglegan til sín í vinnu ef þeir þora þá að ráða mann. Fólk utan að landi virðst nefninlega hafa það orð á sér að vera mikið duglegra heldur en fólk héðan úr borginni. Eru þar með allir sem eru "héðan" orðnir húðlatir tyggigúmmíjóðlandi hálvitar sem engu nenna?

Bara pæling; ég held ég þurfi að fara skrifa grein í Morgunblaðið og skammast smá:)

 

Skrifa ummæli

<< Home