Samsetning
Samsetning er nú í fullum gangi. Ég eyddi páskunum mest öllum í bílskúrnum. Þetta tekur allt mjög mikinn tíma þegar svona er staðið að verki þ.e.a.s þegar allt á að líta út eins og daginn sem það rúllaði af færibandinu í trollhattan. Ég slípaði ventlana og sætin í heddinu, þvoði gírkassann úr 90-unni sem fer í túrbóinn, verkaði gamlar pakkningar sem ekki eru æskilegar ef nýjar pakkningar eiga að koma í þeirra stað en þetta er þó ekki tæmandi listi yfir atburðarrásina.
Heddið fór svo á í gær þannig að ekki líður að löngu þar til gírkassinn fer neðan á vélina og eftir það skrúfast hver smáhluturinn á fætur öðrum á vélina og þá er hún svo gott sem klár.
Þá getur Þórir farið að vinna í sinni vél (vélin mín er ennþá á vélastandinum en fer þaðan um helgi) en hann ætlar að setja 16 ventla túrbóvél í 99una sína sem er töff. Ekki leiðinlegt að eiga landsins fljótustu 99. Einhverntíma ætla ég að eiga landsins fljótasta 900 SAABinn, en það verður þó ekki fyrr en ég get keypt mér gírkassa sem er ekki samsettur úr smjöri.
Ég hef ekkert farið ennþá í verkstæðið þar sem bílinn er eftir páska, en ég fer bara á morgun eða föstudag. Á ekki beint von á því að þeir verði búnir með bílinn þá, reynslan hefur nefninlega kennt mér að treysta ekki á þá.
Later!

2 Comments:
Þú getur alveg átt landsins fljótasta 900 með smjörkassa. Ég hef sterkan grun um að ég eigi í augnablikinu landsins fljótasta 900 (hann er meira að segja svo fljótur að hann er ekkert á því að stoppa setji maður hann af stað á annað borð), og ég er nokkuð viss um að það má keyra töluvert hraðar áður en smjörkassarnir fara að gefa sig. Minn hefur allavegana ekki gefist upp ennþá.
7-9-13
Kv. Nóni
Skrifa ummæli
<< Home