fimmtudagur, febrúar 24

Nýr SAAB í fjölskylduna

Já það er rétt! Skötuhjúin og ofurparið Grétar og Sigga hafa nú selt Toyotuna sína og keypt í staðinn alveg ÆÐISLEGAN SAAB 900 S, en sá er m.a. með 2,3 l vél, beinskiptur með leðri, loftkælingu, ABS og geisladiska magasíni svo fátt eitt sé nefnt. Við Grétar bónuðum hann hátt á lágt hér áðan og tókum síðan stuttan hring á honum. Einnig er gaman að segja frá því að hann fékk nýja gorma að framan (það er samt örugglega ekkert að þessum gömlu:) og splunkuný sumardekk en auk þess voru nagladekkin ný. Þetta er alveg frábær bíll, líður alveg hreint áfram eins og andi sem svífur yfir vötnum og hvar sem maður horfir sér maður að hann vekur eftirtekt. Ég óska þeim til hamingju með þennan gæða SAAB sem á sko örugglega eftir að reynast þeim vel.

Af túrbínunni minni er það hinsvegar að frétta að hálfvitinn sem seldi mér hana fékk hana aftur í hausinn vegna þess að hann hafði ekki sent öll þau gögn sem hann þurfti að senda með henni. Hann lét mig ekki einusinni vita af þessu þannig að ég gæti bara sagt honum að senda þetta með flugi, en nú get ég allt eins átt von á því að þurfa að bíða í 45 daga í viðbót, sem kemur ekki að sök svona þannig lagað séð, en þar sem hann er með fullt af peningum sem ég á líður manni betur með að vita af þessu einhverstaðar þar sem maður getur allavega fengið tracking númer. Vona bara að þetta berist fljótt.

Ég er einnig kominn með sumarvinnu, en ég verð á vélaverkstæði Heklu. Það held ég að sé mjög góður skóli þar sem ýmislegt ætti að vera hægt að læra.

Bílinn minn er ennþá á verkstæðinu en eigandi þess hafði slasast á vélsleða og meira að segja alveg helling þannig að vinna við bílinn hefur ekki komist á fullt skrið ennþá, það þýðir heldur ekkert að vera að svekkja sig á svona töfum og vera með eitthvað nöldur því þá segja þeir manni bara að troða þessu uppí teilpæpið á sér. Þeir voru að vísu búnir að festa á hann brettið en eitthvað lítið annað. Þetta hefst allt á endanum.

Annað er svosem ekki að frétta en þetta eru afar ánægjulegar fréttir af þeim Grétari og Siggu, en þá er bara einn af þeim sem ég hef þekkt lengst eftir að eignast SAAB en þar er kannski ekki mikil von vegna þess að kona þess ágæta drengs vill hreinlega ekki sjá SAAB á sínu heimili. Mér finnst samt sniðugt að meirihluti þess fólks sem ég hef mest samskipti við séu á SAAB :)

Kv. Birkir

2 Comments:

At 9:09 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Til hamingju með sumarstarfið og þakka þér fyrir allt hólið. Sigga tók nú reyndar ekki vel í að kaupa SAAB til að byrja með, en eftir að hún hafði sest upp í kaggann þá sannfærðist hún.

Bíðum nú og sjáum til hvort að spúsa eina vinarins sem ekki á SAAB heillist ekki af hinum sænsku eðalvögnum þegar ég hef boðið henni í rúnt á töfrateppinu okkar Siggu.

 
At 9:09 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Það eru semsagt plúsar og mínusar en ég verð að segja að mínusarnir blikkna nú við hliðina á þessum plúsum, það er ekki hægt að segja annað en til HAMINGJU Grétar og Sigga. Dettur nú í hug að þessi tiltekna spúsa þarna sem er svo sérlega einkennileg að vilja ekki SAAB gæti snúist hugur ef að Þórir og Birkir á Aeronum og bjóða henni rúnt. Það verður samt að vera á eftir 900S Grétars svo að við sjáum hversu erfitt er að sannfæra hana.

Kv. Nóni

 

Skrifa ummæli

<< Home