Stofnun SAAB klúbbs og önnur mál
Þar sem ég var staddur í kaffi hjá Nóna ásamt Þóri fórum við að telja upp þá sem líklega gengju í SAAB klúbbinn þegar kemur að því að stofna hann. Þetta voru hátt í 40 nöfn á lista sem er nokkuð gott. Þá fórum við einnig í smá nafnahugleiðingar, ef einhver er hér sem les þetta og er með góða hugmynd þá má sá hinn sami koma með hana sem comment. Ég verð með frekari upplýsingar hér þegar kemur svo að stofnunninni sjálfri.
Ég leit við í Víkur-Ósi í dag, þeir voru þá búnir að grunna stóran hluta spoilerkittsins þannig að ekki líður að löngu þar til þeir mála það. Um bílinn sjálfan veit ég minna en ég er samt að hugsa um að fara aðeins aftur á stúfana á morgun og segja þeim hvað væri frábært ef þeir yrðu nú búnir að þessu fyrir páska, þá eru þeir nú búnir að hafa rúman tíma til þess að gera þetta.
Ég er að ryðbæta skottlokið núna og gengur það vel, ætti raunar alveg að geta klárað það núna á eftir. Þá á eftir að vinna aðeins í húddinu og hurðunum.
Vélin fer nú líka að skríða saman, ég er búinn að hóna, stimparnir liggja í olíubaði og bíða þess að verða póleraðir, gaman er að geta þess að ég mældi slífarnar og þær eru sko langt fyrir innan slitmörk sem segir manni bara það að þetta eru alveg svaka góðar vélar.
Sem sagt gangur í þessu hjá kallinum. Bless í bili.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home