mánudagur, maí 23

Ég vann og fékk bikar og allt !!!

Já það er rétt. Ég keppti í kvartmílu í fyrsta skipti á laugardaginn, það var alveg geðveikt sérstaklega afþví að ég vann 14,9 flokkinn. Ég var á SAABinum hans Nóna sem er 9000 turbo með sjálfskiptingu og Direct Ingnition kveikju. Þessi kveikja er þeim góðu eiginleikum búin að hún þreyfar eftir brunaþrýstingi í brunarýminu og ef hún telur allt með felldu þá leyfir hún bílnum að keyra hraðar. Áður en keppnin hófst setti ég 99 oktana bensín á fína SAABinn og fór þá strax á 15,6 sekúndum. Þannig hélt svo bílinn áfram að bæta við sig og ég komst niður í 15,177 sekúndur á endanum, en þá var ég líka orðinn fínn á viðbragðinu. Stefnan er að sjáfsögðu sett á áframhaldandi keppnir á þessum mikla eðalbíl og ætti að vera vandalítið að komast niðurfyrir 15 sekúndurnar án teljandi breytinga. Sem sagt massa stuð sem vonandi verður framhald á.

Af mínum SAAB er heldur lítið að frétta. Ég er reyndar búinn að að líma nýtt efni á þakið á honum(headliner) en það tókst ekki alveg eins vel og ég hafði ætlað. Einnig skóf ég mestu ryðvörnina innan úr hægri hjólaskálinni og svo er ég aðeins kominn af stað með að víra útvarpið, en reyndar er það mjög lítið verk. Nú að síðustu er ég búinn að ryðbæta innan í húddinu og hurðina farþegamegin þannig að nú fer ég að geta látið mála afganginn af bílnum. Reyndar er þetta nú ekkert svo lítið, en vikan hefði getað orðið drýgri, en hann Jón Björn vinur minn var hérna í heimsókn og var gaman að sjá hann aftur eftir þessi 2 eða 3 ár sem liðu.

Á mánudaginn í síðustu viku kláraði ég svo skólann með glæsilegum árangri að mínu mati og eins og tíðkast í vélskólanum drekka menn öl eftir próflok. Það hefði ef til vill verið í lagi ef bjórinn hefði verið það eina sem menn drukku en sterkir drykkir settu svo svip sinn á kvöldið og endaði það með því að hann Birkir drapst í einar tvær klukkustundir í sturtunni þegar hann kom heim klukkan eitt eftir miðnætti. AHAHAHAHAHAHAHA. Þetta var alveg svakalega gaman hjá okkur og vil ég þakka þeim piltum sem tóku þátt í grillveislunni hérna heima en við höfðum áður legið yfir bókum í tvær vikur saman 9 talsins. Þetta var eftirminnilegt kvöld og ég segi bara Same time next year!!!

Sem sagt mikið að gerast og allt alveg jolly gaman! Skrifa meira þegar fer að komast skrið á SAAB mál hér í skúrnum.

2 Comments:

At 10:56 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Áfram SAAAAAAAAAAB..........og til hamingju með að vera búinn að keppa í fyrsta skifti í kvartmílu og vinna. Ekki nóg með það heldur vann hann Þórður félagi þinn líka bikar, ég þarf endilega að hafa samband við hann.


Kv. Nóni

 
At 1:49 e.h., Blogger biggi toker said...

til hamingju með þennan glæsta sigur, ég er viss um að saab verksmiðjurnar væru til í að heyra af þessu og senda þér viðurkenningu fyrir vel unnin störf í þágu saab .. haha

en já, próflokin voru einkar glæsileg, við fögnum bara jólapróflokum með því að fara á grillið á borginni, er ekki stemmari fyrir því?

 

Skrifa ummæli

<< Home