SAABinn er kominn heim!
Loksins Loksins Loksins er minn góði SAAB kominn heim í heiðardalinn. Og fer hann að fá verðskuldaða væntumþykju aftur núna, en mér finnst mennirnir sem tóku hann að sér ekki hafa sýnt það að þeir séu þess verðugir að hafa svona höfðingja inni á gólfi hjá sér. Ég er ekki fullkomlega sáttur við vinnubrögðin hjá þeim en það ber svosem ekki svo að skilja að þetta sé fullkomlega illa gert. Bíllinn er allstaðar sléttur og fínn það sem ber á en mikið vantar uppá að vélarrýmið sé nægilega vel unnið. T.a.m kláruðu þeir ekki að mála brettin að innan, vegna þess að þeir komu ekki könnunni að, þeir sögðu mér bara að ég þyrfti að fá mér spreybrúsa og úða sjálfur á hann þar sem enn sæist í rauða litinn. FÍNT, ég veit ekki um marga sem komast upp með að klára ekki að vinna vinnuna sína, finnst mér þetta fyrir neðan allar hellur. Hvernig væri tildæmis að hafa suðumann í vinnu við að sjóða saman burðarvirki í stálgrindarhúsi og hann klárði ekki að sjóða, það sjá náttúrulega allir með viti hversu fáránlegt þetta er. En þeir komust þó upp með þetta í þetta skiptið vegna þess að ég hef engin ósköp af tíma til þess að fara þarna í næstu viku eða þeirri þarnæstu til þess að ná í bílinn og ganga á eftir þeim a.m.k 2svar í viku.
Ég er sko ekkert yfir mig ánægður með þetta eftir allan þennan tíma, en ég held samt sem áður að SAABinn verði fínn þegar búið verður að setja hann saman svo að ég tali nú ekki um hvað verður fínt að keyra hann með öllu sínu afli, ég ÆTLA SKO niður í lágar 14 í sumar, SAABinn getur það sko alveg.
Ég vil koma fram þakklæti mínu til Nóna en hann er bæði búinn að lána mér bílinn sinn til þess að ég gæti snúist í kringum þetta í gær og svo aðstoða mikið við að koma bílnum heim að ógleymdri aðstöðunni í bílskúrnum o.s.frv.
Jæja nú ætla ég niður í skúr og fara höndum um SAABinn og sjá hvort ég verð ekki kátur, ég er það nefninlega ekki núna.
Kv. Birkir

2 Comments:
Heyrðu lagsi, hvað með litinn? Þú tjáir þig eitthvað lítið um hann, ertu ennþá orðlaus eða hvað?
Kv. Nóni, alltaf til í SAABat
Hvernig væri að fara bara í lágar 13, sleppa þessu 14 sekúndna standi bara :)
Baldur
Skrifa ummæli
<< Home