sunnudagur, apríl 17

Jæja er ekki kominn tími á að röfla pínulítið? Á föstudaginn fór ég í Víkur-ós til þess að athuga statusinn. Bíllinn var þá á leið inn í klefa til þess að fá grunn yfir sig. Það er í sjálfu sér bara mikill áfangi vegna þess að þá er búið að sprautusparsla og vinna alla undirvinnuna. Þegar búið er að grunna bílinn og plana grunninn niður er í raun fátt eftir nema að gluða yfir hann litnum. Þessir menn eru mjög vandvirkir og sýndist mér öll vinnubrögð vera til fyrirmyndar. Ég var aðeins að kíkja á myndir af bílnum síðan í fyrrasumar þegar ég var að vinna í gólfinu og taka brettið af (eða skerminn eins og akureyringar og frændur vorir í Svíþjóð mundu segja) og þetta var skelfilegt, ef þið bara vissuð! reyndar vita það útvaldir menn en gott er að svona hlutir falla í gleymsku:)

Talandi um myndir, þá er hann Þórir búinn að koma upp myndasíðu og er ég byrjaður að setja inn myndir af projektinu. Fór meira að segja með túrbínuna mína á Álfhólsveginn og ætlaði að taka mynd af túrbínunum saman þ.e.a.s. standard T3 túrbínunni annarsvegar og T3 60 hinsvegar, en batterýið í myndavélinni var búið þannig að ég málaði bara mótorfestingar í staðinn, sem var afar hressandi.
Ég sé ekki fram á að komast á bílnum á bíladagana á Akureyri þó svo að það hefði verið alveg geðveikt, ég held að tíminn sé orðinn alltof knappur. Mánaðarmótin Júní Júlí eru fín viðmiðun.

Hérna er línkur á heimasíðuna sem Þórir setti upp en ég kann honum hinar mestu þakkir fyrir að hafa komið svona myndasíðu í gagnið og leifa mér að nota hana. Kíkið á hana og segið álit ykkar ef einhverjir eru sem eiga eftir að kíkja á síðuna, en tæp vika er síðan hún komst í gangið.
Reyndar liggur síðan stundum niðri en hún er nú svo ný til komin að ekki þarf að undra þó svo Þórir sé að breyta einhverju eða bæta, þið sýnið bara biðlund.

http://81.15.46.15/gallery

1 Comments:

At 5:13 e.h., Blogger Tiny said...

Búinn að kippa þessu í lag.

 

Skrifa ummæli

<< Home