Vélin tilbúin
Vélin er komin saman í öllum aðalatriðum. Ég á að vísu eftir að setja einhverja smáhluti til viðbótar á hana en það er ekkert stórmál. Því var harðlega mótmælt að ég setti í gang á þessu k-jet innspýtingardóti mínu þannig að þessi bíll keyrir bara strax á Autronic SMC, sem er forritanleg innspýtitölva sem getur allt. Hana fæ ég hjá strákunum í hestaflabúðinni, en þeir standa í fremstu víglínu þegar kemur að tjúnun túrbóvéla.
Málun bílsins gegnur hægt, þeir voru þó að plana niður fylligrunninn þegar ég kíkti til þeirra á fimmtudaginn. Ég er ákveðinn í að láta þá klára þetta þó svo að það taki tíma því það er betra að eiga hönk í bakið á þeim ef ég er ekki sáttur við vinnubrögðin, þetta er hvort sem er fallið á tíma fyrir prófin þannig að þetta skiptir engu máli. Ég er búinn í prófunum þann 16 maí, þannig að það getur verið að ég taki mér viku frí áður en ég byrja að vinna og byrji aðeins að setja saman.
Annað er svosem ekki að frétta af mér. Feginn að vera búinn með vélina en lærdómurinn bara framundan, ég á nú samt örugglega eftir að blaðra eitthvað um SAABinn minn enda líður ekki sá dagur sem mér dettur ekki í hug að gera eitthvað skemmtilegt við hann.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home