fimmtudagur, september 29

Ég von é' komi kagganum í lag, strax í dag!

Það gengur ekkert sérstaklega vel að fá bílinn til þess að fara í gang aftur. Hann bara fer ekki í gang, það er eins og vanti bensín en samt opna spíssarnir. Þetta er voða skrítið alltsaman. En þó er ég farinn að geta startað innan úr bíl vegna þess að við fundum vírinn sem á að liggja niður á startpunginn. Það væri alveg frábært ef þetta færi nú að bara virka, ég ætla að gera tilraun núna á eftir en hún felst í því að færa sensorinn sem nemur merkið frá trissuhjólinu nær eða niður fyrir 1mm.

Annars er það að frétta að hann Kjartan vinur minn skoraði á mig að setja inn einhver 5 atriði sem geta talist vera leyndarmál um mig sem engir aðrir vita, málið er bara það að ég get ekki komið því fyrir mig hvort ég á einhver slík leyndarmál eða hvað það gæti verið, ég er samt búinn að vera að velta þessu fyrir mér. Ef mér dettur eitthvað í hug þá skal ég láta það hér inn, en á meðan fær hann respect hjá mér fyrir að láta þetta sem hann skrifaði inn á síðuna sína. Snillingur með meiru!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home