Ég stillti skíthælnum í BNA upp við vegg í dag, og er búinn að fara svolítið illa með hann nú þegar. Þannig er að við feðgar hringdum í meintan framleiðanda þessarar túrbínu á föstudagskvöldið og sendum honum myndir af henni í kjölfarið. Hann gat sagt okkur það strax að þetta væri ekki túrbína frá honum því hann seldi aðeins nýjar, og þær væru allar með Turbonetics logoinu. Þess vegna sendi ég póst á skítbuxann í dag þar sem ég gaf honum þann kost að senda mér aðra að öðrum kosti fengi túrbónetics alla þá vitneskju um hvernig hann geri viðskipti. Ég vona svo sannarlega að svona fyrirtæki eins og turbonetics vilji ekki stunda viðskipti við svona pappakassa sem villa um fyrir sér með því að selja vöru undir þeirra merkjum. Ég væri allavega sáttur við að sjá tölvupóst frá þeim þess efnis að vecco high performance inc væri ekki lengur þeirra díler. Ég myndi fara uppí Hallgrímskirkjuturn og hlæja tryllingslega þannig að undir tæki í Esjunni, og svo myndi ég væntanlega drekka blóð á eftir!

3 Comments:
djöfull eru þetta góðar fréttir...vonandi verða góð endalok á þessu máli..
Kannski muntu drekka hans blóð......
Kv. Nóni
múhahahaha!!!!
Endaþarmsserðing þín mun skilja hann eftir með krónískar bólgur á þarmatotum hans.....
múhahahahahahaha............
Skrifa ummæli
<< Home