miðvikudagur, janúar 4

Vorönn að hefjast!

Ég fékk stundatöflu í dag og hún er ömurleg!! Mánudagurinn er fullbókaður frá 8:00-17:40 og svo eru þri, mið, og föstudagur allir með hátt í 3ja klukkutíma eyðu í. Fimmtudagurinn er reyndar allt í lagi en þá er ég frá 10-15 í skólanum. Þessir aular sem sjá um töflusmíði þarna uppi í skóla fá algjöra falleinkunn hjá mér, og þeir segja að ástæðan fyrir þessu sé að skólinn sé ekki nógu stór til þess að geta raðað alminnilega í töflurnar. Ég hlýt þá að spurja: Hvernig gengur að kenna í minni skólum en þessum? komast nemendur þar einhverntíma í tíma?
Þetta er skemmtilegt nám en ég verð þeim degi fegnastur þegar það er búið og ég þarf ekki að hlusta á svona rugl lengur, ef þeir tækju nú hendurnar úr skautinu á sér og reyndu að skipuleggja þetta aðeins betur hlýtur að má fá einhverja heildstæðari mynd á þetta. Bull.

1 Comments:

At 7:48 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

nei nei, en mjög margir fá ekki það sem uppá vantar inn í töfluna án þess að ganga í gegnum heilt helvíti af skrifstofuferðum o.s.frv. En ég er sjálfsagt með svona vonda töflu afþví að ég er ekki í nema 19 einingum en venjulegur námshraði er 21 eining.

Kv. Birkir

 

Skrifa ummæli

<< Home