laugardagur, febrúar 25

Beinar innspýtingar

Nú er svo komið að bæði ég og SAABinn erum með beinar innspýtingar, því í stað þess að ég sprauti mig 4-5 sinnum á dag með insúlíni er ég kominn með dælu sem gerir þetta sjálfvirkt að hluta. Þó ber ekki svo að skilja að ég geti hætt að mæla mig og strokið um frjálst höfuð laus við allt sem fylgir þessu en ég sé allavega mikið stærri kosti þess að hafa svona dælu heldur en að vera með sprauturnar. Það er nefninlega þannig með mig að ég nenni ekki alltaf að standa í því að sprauta mig og gera vesen. Þið sjáið líka að ég hef verið að stinga mig að jafnaði 4 sinnum á dag að jafnaði í 9 ár(og fyrir þá sem hafa gaman að reikningi eru þetta u.þ.b 13150 skipti:) þetta er kærkomin pása frá því. Ég tek þessu allavega fagnandi, nú sting ég mig bara á 3ja daga fresti í staðinn, reynsla annarra hefur líka sínt að þetta virkar enn betur heldur en hinar aðferðirnar sem hafa verið þekktar hingað til.

13150 skipti... ég væri jafnvel enn götóttari en mjólkursían sem Roy Rogers söng um hér um árið ef ég væri ekki með svona þykkt og gott skinn!

6 Comments:

At 12:36 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Er þessu stungið í GLANSINN?

 
At 10:53 e.h., Blogger kuttson said...

Djöfull eruði bilaðir!!

Kv. Glansinn sjálfur

 
At 10:07 e.h., Blogger Kjarri said...

ég gef skít í glansinn! Lækningar eru ekki lækningar nema þær séu framkvæmdar í gegnum endaþarm....

 
At 10:08 e.h., Blogger Kjarri said...

Það kalla ég innspýtingu!!!

 
At 1:02 e.h., Blogger kuttson said...

Ég er til í Metal

 
At 8:12 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

var að lesa mér um sögu þessa rosa góðu saaba...

læt hér linkin fylgja http://www.saabmuseum.com/rally/index.html

takið sérstaklega eftir ári 86...

 

Skrifa ummæli

<< Home