T16 í SAABinn
Komin er þessi líka fína 16 ventla vél í bílinn minn. Ég, Þórir og Nóni tókum ofurtörn heimsins í skúrnum um helgina og slitum nýju en ónýtu vélina uppúr SAABinum, ýttum bílnum mínum út, settum Tanngnjóstr inn rifum og tættum þangað til vélin var komin út á plan, settum svo þann svarta aftur inn og settum vélina í hann.
Þetta tók um 25 klukkutíma að gera og kostaðurinn kannski svona 10 þús en auðvitað veltir maður því ekki fyrir sér þegar maður á GEEEEÐVEIKAN bíl með ofurrokknum úr Tanngnjóstr um borð. Ég er allavega rosa ánægður með að vera búinn að þessu og hafa tekið þessa ákvörðun.
Þeir sem vita ekki hvað túrbóið er gott, geta sjálfsagt ekki ímyndað sér hvernig við nennum að standa í þessu en túrbóið rúlar!!!!!

1 Comments:
Hey hún er ekkert ónýt gamla vélin, dexelið er sennilega bara ekki í stakk búið til að gera meira í bili.
Kv. Nóninn (hetja líka)
Skrifa ummæli
<< Home