föstudagur, október 15

Bílamálun framhald

Jæja fyrir þá sem ekki hafa frétt af gangi mála í SAAB landi fá nú fréttaskot. Sum sé, bílamálarinn kom til þess að taka út verkið. Honum leist bara vel á gang mála og sagði mér að klára að vinna allt ryð þannig að það komi ekki aftur daginn eftir (sem ég er reyndar langt kominn með). Taka rúðurnar úr eins og ég hafði reiknað með að gera, bera zink á þar sem innra brettið og boddýið mætast og sjóða það síðan á bílinn. Hann ætlar svo að setja ytra brettið á (reyndar get ég þá alveg eins gert það (með hjálp góðra manna)) fyrst hann vill að ég setji innra brettið á líka. Að þessu loknu tekur hann boddýið, þ.e.a.s skelina og málar. Þegar þetta er svo búið tekur hann svo hurðir, afturhlera, húdd og spoilera til vinnslu. Þetta kemur sér ágætlega fyrir mig því þá get ég raðað einhverju inní skelina á meðan hitt dótið er í málun. Ástæðan fyrir því að hann vill vinna þetta á þennan hátt er að þeir eru ekki neitt svaka margir þarna í vinnu og svona stór verkefni geta orðið íþyngjandi ef bíllinn er útum allt verkstæði og allt í gangi í einu. Þetta get ég alveg skilið, svo breytir engu fyrir mig hvernig þetta er gert ég vil bara að ég standi uppi með alveg ofurbærilegan SAAB á endanum. Um verð sagði hann ekkert. Líklega er hann búinn að læra það fyrir löngu að vera ekki að segja eitthvað sem hann getur svo alls ekki staðið við og verða svo á endanum að borga með verkinu. Hinsvegar sagði hann mér að þetta yrði sanngjarnt. Ég held mig ennþá við stærðargráðuna 150 kall. Jæja er að fara að gera eitthvað. Bless í bili

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home