Kominn tími á að finna nýtt verkstæði kannski?
Þannig er mál með vexti að ég fór á föstudaginn á verkstæðið. Það hafði ekkert gerst yfir páskana og ekkert í vikunni sem er að líða núna. Ég leit líka við í dag og það er ekki að sjá að þeir séu neitt að vinna í þessu yfir helgina. Það fauk svolítið í mig vegna þess að þeir eru búnir að hafa bílinn í 10 vikur og enn er ekki byrjað að vinna í þessu að neinu viti. Segjum sem svo að bílinn hefði verið hjá þeim í 4 vikur sem ég held nú samt að sé rúmlegur tími þrátt fyrir allt, þá væri ég búinn að hafa hann í 6 vikur núna og á þeim tíma er nú hægt að fara langt með samsetningu.
Ég bað fyrir skilaboð til mannsins um að hringja í mig í gær og það gerði hann ekki, sem mér finnst lélegt. Mér finnst þessi afsökun þeirra um manneklu orðin gömul vegna þess að ég er búinn að sjá fullt af bílum fara í gegn hjá þeim á þessum tíu vikum sem ég er búinn að bíða þolinmóður. Ég bað þá ekki um að gera þetta ókeypis og get þessvegna ekki sætt mig að að sitja alltaf á hakanum. Ég bað manninn um að vera búinn með hann fyrir páska sem stóðst ekki, þá spurði ég hann á miðvikudag fyrir skírdag hvort ekki yrði settur kraftur í þetta strax eftir páska, það gerði hann ekki.
Nú er mál að linni, ég ætla að hringja í hann á mánudagsmorgun um 9 leytið og spyrja hann hvort hann vilji að ég taki bílinn bara strax og beini mínum viðskiptum eitthvað annað eða hvort hann vilji setja undir sig hausinn og vera klár með bílinn á föstudaginn í sömu vikunni. Allavega er það alveg ljóst að þetta helvíti gengur ekki! Ég talaði við mann á föstudaginn sem vinnur hjá Auðunni bílamálara í kópavogi og hann tók ekki illa í að mála bílinn fyrir mig, en sagði mér að tala við Auðunn sjálfan á mánudag það ætla ég að gera.
Það er ekki oft sem ég verð pirraður, og ennþá sjaldnar vondur en djöfull er ég búinn að fá nóg af þessum andskotans hægagangi þarna uppfrá.
Kv. Birkir vondi

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home