sunnudagur, október 2

Það sagði við mig maður í dag.....

....að hann hefði orðið afhuga SAAB klúbbnum eftir að hann sá hvað ég er búinn að gera við bílinn minn og hann sæi sig ekki í slíkum félagsskap. Þær röksemdafærslur hafði hann fyrir máli sínu að þetta væri ekki orginal lengur, en sagði samt að þetta væri nú allt flott hjá mér samt.

Mér finnst mjög leitt að hann geti ekki mætt lengur og vona ég að hann endurskoði hug sinn varðandi þessa afstöðu sína. Þetta er ekki 1930 módel af Ford T sem við erum að tala um hérna :) Einnig eru þeir hlutir sem ég hef sett í bílinn sem eru ekki orginal, settir í hann til þess að auka stöðugleika bílsins við hinar ýmsu aðstæður og þannig vonandi gert hann öruggari vegna þess auka afls sem ég get tekið út vegna annarra breytinga.

Það eru fleiri í klúbbnum en ég með minn SAAB og vonandi getur maðurinn mætt og þannig ekki látið þetta bitna á öðrum í honum.

Verum nú vinir, þetta er áhugamannaklúbbur og þar verður að ríkja skoðanafrelsi, hver gerir það sem honum sýnist við sinn bíl. Ég skal allavega vanda mig við að virða ákvarðanir annarra, þó ég sé kannski ekki alltaf alveg sammála þeim.

Virðingarfyllst
Birkir

1 Comments:

At 8:37 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Hver er orginal ?
Bannað að breyta og bæta þetta eru reglurnar, ég las það í nýjasta hefti Samúel. É sá þa.

 

Skrifa ummæli

<< Home