sunnudagur, október 17

Hefði verið til í kvartmílu í dag

Já ég er búinn að bíða í allt sumar og það sem er af þessum vetri eftir að haldin yrði keppni. Reyndar komst ég á eina keppni í sumar. Mér finnst hreint út sagt með ólíkindum að mótshaldarar skyldu blása af keppnishald í dag bara afþví að útlitið var ekki gott í gær þegar þurfti að hætta við keppni vegna úrkomu. Jæja en hvað er ég að kvarta yfir þessu jú ég horfi ekki á fótbolta eins og allir aðrir, ástæðan er sú að mér þykir það alveg svakalega leiðinleg íþrótt. Hinsvegar þykir mér alveg ofsa gaman að sjá aflmikla bíla fara góð rönn. Ég fann einnig fyrir því á föstudaginn þegar ég sat uppí skóla og var að skoða síðuna hjá Nóna, allt í einu heyrðist nefnilega í manninum við hliðina á mér: nau mar' er edda spyddnu SAABinn? Ég: já og það er míla um helgina! á ekki að mæta? Viðmælandi: jú heldur betur hann er sko að gera frábæra hluti á essum SAAB þarna! Eftir það þessu samtali lauk svo fór ég útí rafmagnshús og þar var einmitt verið að tala um kvartmílu. Minns spurði að sjálfsögðu hvort ekki ætti að mæta og viti menn, nú var heilmikið spjallað um kvartmílu gaman gaman. Svo var að sjálfsögðu bara öllu frestað. Jæja þetta er búið að vera svona, yes! kvartmíla um helgina! ohh henni frestað skoðun um næstu helgi . Hei það er víst kvartmíla um helgina! en nei frestun vegna slæms útlits og ekki talið stætt á því að plata menn utan að landi í bæinn fyrir kannski ekki neitt ohh.. Jæja þýðir víst ekki að fást um þetta ég er ekki einusinni meðlimur kvartmíluklúbbsins. Farinn að læra eðlisfræði. Birkir

1 Comments:

At 11:42 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Það var virkilega hressandi að spyrna svolítið í dag, það var bara leitt að komast ekki niður fyrir 12. Kíktu á vídeoið á síðunni www.icesaab.net

Kveðja úr SAABheimum, Nóni

 

Skrifa ummæli

<< Home