fimmtudagur, nóvember 11

Örstutt !

Fékk varahlutina frá Danmörku á þriðjudaginn. Svaka fínt að eiga svona fín fyrirtæki að í nágrannalöndunum sem skaffa manni svona SAAB parta bara eins og maður vill hafa þá. Ég og Nóni erum langt komnir með viðgerðina frammí og þá er bara eftir að laga brettin, alveg satt!

Ég hringdi líka í scandium í Svíþjóð sem selja airflow kittin og fæ hlutina sem mig vantar senda til mín þar sem ég verð á hóteli í Lundi eftir viku. Ég mæli með að allir þeir sem þetta lesi blæði nú á sig einu airflow kitti á 99urnar sínar þau kosta nefninlega sama og ekki neitt. Mér finndist meiraðsegja ekkert athugavert við það þó að menn ættu ekki neinar 99ur í augnablikinu til þess að kaupa þetta á. Svona airflow kitt geymast nefninlega mjög vel í bílskúrum sem eru svo heppnir að fá SAAB í sig annaðslagið eða oftar.

Djöfull verður gaman að boosta um götur bæjarins á mínum fína SAAB. Ég hlakka sko til!

Kv. Birkir

3 Comments:

At 6:07 e.h., Blogger Kjarri said...

njaaa,,, airflow kit á SAAB!? Ég var nú reyndar að spá í
Hyundai. Sá einn geðveikan Santa Fe jeppa um daginn. Það
er annaðhvort hann eða Kia Klarus sem verður tekinn á bombandi bílaláni. hmmm, er ekki stemmnung fyrir því???

 
At 7:26 e.h., Blogger kuttson said...

Ja bíddu leyfðu mér aðeins að hugsa.... NEI!! SAABSAABSAABSAABSAABSAABSAABSAABSAABSAABSAABSAABSAABSAABSAABSAABSAABSSAABSAAB OG AFTUR SAAB

 
At 12:38 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Helvíti er Kjarra illt, hann þarf að komast í nudd. Hann verður samt að láta okkur vita ef hann ætlar að losa sig við eðalinn, sem ég trúi nú ekki upp á hann.

Kv. Nóni

 

Skrifa ummæli

<< Home