laugardagur, nóvember 6

Liturinn

Ég fór í gær uppí Bílheima og reyndar uppí BÉOGELL líka að spá í þessa liti. Þeir uppi í béogell höfðu nú takmarkaðan áhuga á því sem mér lá á hjarta og var ég fljótur að hypja mig þaðan út enda bjóða þeir einungis uppá bíla sem eru leiðinlegir og þeir eru það allir með tölu. Jæja síðan fór ég niður í Bílheima og talaði við einhvern ágætis dúdda. Þegar ég sagði honum hvað ég væri að gera lifnaði heldur betur yfir honum svo við tókum tal saman. Hann sagði mér meðal annars að þeir ættu í viðræðum við SAAB úti um einhvern betri díl á bílana þannig að þeir yrðu ekki jafn hryllilega dýrir eins og nú er. Þetta er ágætis náungi alveg og hefur einhvern metnað til þess að selja SAAB vegna þess að ég taldi eina 5 SAABa þarna 4 95 og 1 93SS inni. Einnig bað hann mig um að koma til þess að sýna sér minn bíl þegar hann kemst á götuna. Það mun sko ekki standa á því, ég skal sko sýna hverjum sem er minn fína SAAB þegar þar að kemur.

Liturinn mun verða SAAB svartur og SAAB steel grey eða grá sanseraður. Ef þið eigið ef til vill SAAB bækling í ykkar fórum þá getið þið flett þessu upp annars gætuð þið farið á http://www.saab.is eða http://www.saabsverige.com og fundið útúr þessu þar.

Stálið sem ég er að bíða eftir kemur á mánudag eða þriðjudag og þá stefni ég að því að klára boddýið í síðasta skiptið (veit að ég hef kannski komið með þessa setningu áður, en ég er frekar bjarsýnn að eðlisfari:)

Kv. Birkir

2 Comments:

At 7:38 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Hehehehe........ ég segi bara eitt: Þeim mun oftar sem þú klárar hann, þeim mun flottari verður hann.

Béogell er óttalegt skítafyrirtæki, það hefur þó lánað Kvartmíluklúbbnum húsnæði sitt um páskana undanfarin 2 ár fyrir bílasýningar. Bílheimar virðast vera að skána eitthvað eftir að nýjir eigendur tóku þar við stjórninni.

Kv. Nóni

 
At 9:31 e.h., Blogger Kjarri said...

B&L er frat en Hjúndæ eru massa bílar! Allir ættu að eiga einn slíkan!!

 

Skrifa ummæli

<< Home