Bara aðeins að prófa þetta!
Ég var aðeins að breyta stillingum hérna á blogginu og ætla að sjá hvort þær virka en ég hef ekki getað fengið greinaskil til þess að birtast, þetta er dularfullt vegna þess að þegar færslan birtist svo á netinu er allt í belg og biðu þó svo að greinarskil séu þegar ég skrifa.
Annars er það að frétta að ég hef verið að velta litnum á SAABinum fyrir mér. Þannig er nefninlega að mér finnst grái liturinn á bílnum sem línkað er á hér að neðan mjög svalur. Bíllinn hans Gary's Moore sem þið getið fundið á www.900aero.com er líka svona á litinn. Það er reyndar alveg GEEEEÐVEIKUR SAAB á 18" felgum og ég veit ekki hvað og hvað sem ég myndi svo gjarnan vilja hafa efni á. Ég gæti líka alveg sagt ykkur að fara á twinsaabs.com og skoða bílana þeirra jeff og royce sem eru báðir mjög flottir.
Eftir sem áður held ég að ég muni halda mig við svartan og gráan. Svarti liturinn verður sko eins og af árgerð 2004 SAAB aero. Grái liturinn sem verður á spoilerunum verður eitthvað í líkingu við litina sem eru á Benz t.d. 190 og 230 módelunum. Þetta held ég að gefi mjög sterkan heildarsvip og jafnvel sterkari heldur en alveg svartan. Maður má nefninlega ekki draga úr aðalatriði bílisins sem er airflow kittið, þá ber svolítið meira á því.
Til þess að taka loka ákvörðun um þetta alltsaman verð ég að fara einn hring á netinu, jafnvel fer ég í bílaumboðin, ef ég man rétt þá er range rover vouge svona svartur og grár það er renault megane líka. JÁ ég fer bara á stúfana á RAM bifreið félagsins á morgun eftir skóla og tek ákvörðun í þessum efnum. Ef ykkur langar til þess að koma með uppástungur eða teljið að ég eigi að skoða fleiri möguleika í stöðunni endilega komið með það og segið það sem ykkur finnst. eftir sem áður verða engar eldingar á mínum bíl það er nóg að hann fari um eins og elding.
Kv. Birkir

2 Comments:
mmm, aha.... 'eg styð svartan og grán tillavagn.
mmm, aha.... 'eg styð svartan og grán tillavagn.
Skrifa ummæli
<< Home