mánudagur, apríl 4

Ég er orðinn hringlandi ruglaður !

Jæja, hringdi þarna áðan, maðurinn sagði að það væri að leysast úr þessari manneklu sinni. Gat engu lofað, en sagði eins og oft áður að hann ætlaði að fara að drífa þetta í gang. Maðurinn sagði líka að mér væri náttúrulega frjálst að ná í bílinn! En er ég einhverju bættari með því ? Bílamálarinn sem ég talaði við eftir að ég talaði við Víkurós sagði að það gætu alveg liðið 3-4 vikur í að hann gæti tekið bílinn. Að ná í bílinn væri þá eingöngu gert til þess að strika undir óánægju mína með vinnubrögð þeirra, ekki til þess að flýta verklokum. Það er samt enginn að deyja yfir þessu (eins og pabbi benti svo réttilega á) en þetta er verulega svekkjandi samt sem áður.

Þetta er bara spurning um að taka ákvörðum um að fara uppeftir og ná í bílinn. Veit reyndar hvað ykkur finnst, mér finnst það líka. Djöfull má þessi bíll verða æðislegur á endanum.

2 Comments:

At 1:21 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Pabbi sagði "Það er samt enginn að deyja yfir þessu"

Ég segi, "Jú þú"


Kv. Nóni:-)

 
At 10:54 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Ja ég fer allavega ekki á neina götuspyrnu með þessu áframhaldi!!

 

Skrifa ummæli

<< Home