Langaði bara að benda ykkur á eitt....
Að það spannst ágæt umræða á SAABnet.com í dag varðandi gírkassana í gömlu 900 bílunum. Það var nefninlega þannig að um helgina fór maður sem heitir Gary Moore (GM) á bílnum sínum á svona einhverslags hringakstursbraut sem er hægt að keyra ægilega hratt í og bruna fram úr fjöldanum á tjúnaða SAABinum sínum. Þessi kauði á einn flottasta 900 SAAB sem ég veit um, hann er með allt nýtt í vélinni sinni, sterkari gerðina að gírkassa sem á að þola mikla misnotkun, vélstjórnartölvu eins og ég á og margt goodies sem ég nenni ekki að telja upp því sá listi yrði langur.
Fyrirsögnin á performance spjallinu var svona: %9ing SPG, who wants to buy it. Hann var svo leiður yfir því að "ofurgírkassinn" hans var brotinn. Þessi gírkassi er frá honum gírkassa Jörgen eins og hann er kallaður í öllum heiminum og kostar örugglega vel á 3ja hundrað þúsunda. Þeir semsagt brotna líka. Þetta er svolítið skemmtilegur þráður, menn eru meðal annars að ráðleggja honum að tjúna bílinn sinn til baka. Ekki góðar fréttir fyrir mig þar sem ég hafði hugsað mér eitthvað í svona í áttina að því sem hann er að gera, en ekki missskilja mig, ég ætla ekki alveg svona langt.
Ég verð bara að sjá til hvað hann getur og reyna að forðast það að brjóta kassann, ég verð sjálfsagt spakur þangað til Þórir tekur Tanngnjóst úr geymslunni og fer að etja kappi við mig og svarta...
Ha ha það verður gaman, er það ekki Þórir?

5 Comments:
jú þá verður sko bústað þar til soggreinin tútnar út og thrust-ið úr pústinu dugir til að knýja gufutúrbínurnar í Nesjavallavirkjun. MUHAHAHHAHAHAHAHA!!!!
blessadur bizzi minn, hérna ég var ad horfa á discovery í gær og thad var einhver svaka breti ad gera upp saab turbo 900 ´80 og eithvad model, han var alveg gedveikt fallegur med sick vél og thá er mikid sagt thegar ég hrósa saab. ég er nú enginn saab madur enn thessi var gedveikur:)
heyrumst JB
Allir SAABar eru geðveikir!!!
nooooo I am feeling the dark force pulling me in:)
saab
is
beau.......ti...full!!!!!
:) JB
Áfram Sigga.........
Kv. Nóni
Skrifa ummæli
<< Home