Jæja þá
SAABinn fór í gang í gær og keyrði umtalsverða stund. Málið var það að það átti alltaf eftir að tala við Hall sensorinn í kveikjunni, en það er svona tæknimál sem erfitt er kannski að útskýra fyrir þeim sem eru minna í fræðunum. Það var Óli sem er þriðja hornið í bermúdaþríhyrningshestaflabúðinni sem í raun uppgötvaði vandann, en við vissum allir að þetta þyrfti að gerast áður en gangsetning væri reynd en betur sjá augu en augu, þannig að nú er von til þess að SAABinn fari brátt að keyra. Ég er ógurlega ánægður með það. Ég talaði líka við mennina í Víkurósi á föstudaginn og þeir voru tilbúnir í að klára að mála húddið og stilla það ef ég kem með bílinn í vikunni, sem er gott vegna þess að það stendur til að sýna bílinn á kvartmílusýningunni sem haldin verður 21-23 október. Gaman og hressandi
Þangað til næst...

1 Comments:
Hamingjaaaaaaaa........!!
Nú er bara að klára hann og monta sig svo hressilega.
Kv.Nóni
Skrifa ummæli
<< Home