mánudagur, október 25

Leti

Er búinn að vera latur að skrifa. Ástæðan er sú að ég hef ekki gert mikið uppá síðkastið í SAABinum. Það stendur til bóta í kvöld. Já þá ætla ég að ganga frá innra brettinu hægra megin, það sauð ég á um daginn og er býsna ánægður með útkomuna. Í kvöld ætla ég líka að sjóða bótina í sem blikkari Ölgerðarinnar beyglaði fyrir Nóna, hún verður rosa fín ég mátaði hana nefninlega áðan. Ennfremur vil ég óska Nóna til hamingju með nýja hraðann sinn brotunu mótorfestingarnar og gírkassann sem öxullinn hitti á leið sinni til andskotans. Kíkið yfir á www.icesaab.net til þess að sjá rönnið sem var flott. Einnig skal bent á blogg sem Kjartan Páll hefur nú nýlega opnað en það er mikil skemmtilesning, m.a má lesa um SAABinn hans þar en hann (hún) ber nafnið Pernilla, en nánar um það á shiii.blogspot.com. Ég þarf að finna svona sexý kvenmannsnafn á bílinn minn eins og tildæmis Gertrud eller Frida eða eitthvað svona verulega æsandi eins og Pernilla. Jæja ég pósta einhverjum pælingum þegar ég finn hvernig sænski andinn svífur yfir mig. Bless í bili Birkir

1 Comments:

At 12:29 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Hehe... eða Inga från Sweden.

Kv. Nóni

P.S. hér er linkur inn á Per Eklund fanpage...

http://drive.to/eklund

Kv. Nóni

 

Skrifa ummæli

<< Home