fimmtudagur, október 28

Update af gangi mála !

Jæja nú er ég búinn að sjóða brettið á og er það vel. Nóni renndi svo til mín og við fórum aðeins að eiga við framendann en þar var ryð vegna þess að vatnskassinn hefur lekið og eitthvað verið fúskað við síðustu viðgerð sem framkvæmd var á SAABinum. Í kvöld er meiningin að laga aðeins meira vinstra megin þar sem öxullinn gengur í gegn á leið sinni frá gírkassanum útí hjólnafið. Þetta er algengur ryðstaður á SÖÖBum hinsvegar er þetta ekki nærri því jafn slæmt og á mörgum öðrum SÖÖBum sem ég hef litið á en þar er oftar en ekki lítið eftir af þessum stykkjum sem ég hyggst lagfæra í kvöld. Hvað um það.. Ég er búinn að taka framrúðuna úr bílum og aftari hliðarrúðurnar. Framrúðunni henti ég beinustu leið í SORPU ásamt ónýtum vatnskassa og einhverju en ég veit að þið hafið ekkert gaman að því að lesa hverju ég hendi og þessvegna ætla ég ekkert að búa til einhvern tæmandi lista yfir það hér, nú ef þið hafið áhuga á því að vita hverju ég henti þá getið þið hringt. Já eitt svona skemmtilegt í lokin. Ég er að fara pílagrímaferð til Svíþjóðar þann 17 nóv. Pabbi er nefninlega að vinna borverkefni í Lundi og við mamma ætlum að skreppa. Gaman væri að leigja sér SAAB bílaleigubíl og keyra með virðingu um göturnar þar í landi og finna hvernig öll streyta líður úr manni þegar maður sest um borð í þvílíkt eðalæki. Einnig væri frábært að festa kaup á einhverju performans í SAABinn, kúpling væri ekki slæmur kostur, það væri túrbína, gírkassi, driflæsing eða bara límmiðar sem stæði SAAB á heldur ekki. Ef þið hafið eitthverju við þennan innkaupalista minn að bæta þá getiði gert það hér að neðan. Bless í bili Birkir

7 Comments:

At 12:13 e.h., Blogger Tiny said...

Það er að vanda mun meira að gerast hjá þér en mér. Ég hef vanrækt SAABana mína undanfarið sökum mikilla karate æfinga. En nú er mál að linni og ætla ég að taka mér þig til fyrirmyndar og vera duglegur um helgina.

Jafnvægisstangir væru ekki slæmur kostur á listann. Og það væru gormar ekki heldur (ef þú ætlar að fá þér svoleiðis þ.e.).

 
At 9:26 e.h., Blogger Kjarri said...

SHIII!!!! Sorpa.... pufff... kanski í næsta lífi.... AUMINGI!!!

 
At 11:40 f.h., Blogger Kjarri said...

Hmmm, hvað skal kaupa? Sjálfur mæli ég með einhverjum massívum neónljósapakka! Ákaflega hressandi í skammdeginu!!

 
At 2:31 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Já það er góð hugmynd þá undir bílinn væntanlega til þess að lýsa á götuna þá ? Kv Birkir

 
At 12:16 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Hey sjáðu þennan fína SAAB með airflow kitti sem er alveg eins og þitt..... http://www.bilgalleri.dk/html/gal_visbil.asp?ID=6150

Þessi snillingur er frá Danmörku.

Kv. Nóni

 
At 12:18 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Hey hann er með engu túrbói.....ái.

Kv. Nóni

 
At 9:54 f.h., Blogger kuttson said...

Einhver hlýtur að hafa dottið á höfuðið ! En mikið er þetta samt fínn SAAB

 

Skrifa ummæli

<< Home