föstudagur, desember 14

Ennþá meira breyttur

Jæja nú fara alveg að koma myndir af síðustu afrekum í skúrnum. Þannig er nefninlega mál með vexti að ég gat ekki horft lengur uppá bílinn svona fínan að utan en jafn ógeðslegan að innan og raun bar vitni. Þess vegna reif ég hurðaspjöldin, hnéhlífina og sætin úr og hófst handa. Ég fór í Hvítlist og keypti leðurmálningu (svarta að sjálfsögðu) Því næst þreif ég hurðaspjöldin og hnéhlífina til þess að málningin myndi festast við. Eftir nokkra klukkutíma var allt orðið svart og reyndar með hreinum ólíkindum hvað þetta tókst vel. Þið fáið að sjá myndir af herlegheitunum þegar ég kemst með myndavélina til Þóris.

Þegar innréttingin er orðin svona ansi sexy gengur ekki að hafa sætin ljósbrún og skítug. Þess vegna hafa tekist með mér og Þóri samningar um að ég fái grá leðursæti úr bíl sem hann á og notar ekkert meira. Ég þarf að breyta festingum þannig að ég geti boltað þessi sæti í en til þess þarf ég að komast í suðu en hana hef ég ekki komist í ennþá.

Þriðja aðgerð undangenginna daga var að færa afturöxulinn inn í miðja hjólaskálina. Þetta er gert til þess að koma 16 tommu felgum með sæmilega stórum dekkjum undir bílinn án þess að þau rekist í hjólbogana í tíma og ótíma. Auk þess eru nýrri bremsurnar komnar í að aftan og þ.a.l handbremsan líka sem er töff..

Myndirnar eru á leiðinni