fimmtudagur, desember 29

Jól, áramót, ég, vinna, hressandi!

Ég hef haft nóg að gera núna þessi jólin. Ég byrjaði að vinna í Heklu nánast strax eftir próflokin og hef líka aðeins reynt að kíkja á bílinn svona eftir því sem ég get. Hinsvegar er þetta mun meiri vinna heldur en ég hafði gert mér grein fyrir eins og tildæmis í kvöld, en þá kom ég heim klukkan 22. Málið er að við erum að taka upp vél í Grindavík sem við vorum alveg að verða búnir með þegar upp kom vandamál sem á þessari stundu er ekki vitað hvað er.

Þessi vinnutörn hefur líka sína kosti en þeir eru að hún gefur sæmilega í aðra hönd sem nýtist vel þegar maður á SAAB. Einnig hefur mér miðað vel í að koma bílnum í skoðunarhæft ástand en það gæti orðið fljótlega eftir áramótin sem hann dytti í gegn um skoðun og þá er líka hægt að fara nota kvikindið eitthvað.

Heyrumst!

mánudagur, desember 26

Jólagangsetning

Gleðileg jól öllsömul. Vonandi hafið þið það gott. Ég hef það mjög gott. Þar sem rólegt er núna rétt yfir jólahátíðina ákvað ég í kvöld að fara niður í skúr og gangsetja bifreiðina mína. Hún er búin að vera í salti í u.þ.b einn og hálfan mánuð núna og var það langþráð frí frá þessu pródjekti. Meiningin er að byrja aftur að grúska núna milli jóla og nýárs og setja svo kraft í þetta eftir áramót.

Eftir margar tilraunir við gangsetningu fór kvikindið loks í gang og gekk sæmilega. Þó er ég ósáttur við hve vélin nötrar mikið í lausagangi en líklega er það útaf því að pústið er ekki alminnilega fast undir. Einnig er eitthvað óeðlilegt á feriðinni í sambandi við lausaganginn, því hann drepur á sér, ég á nú í sjálfusér ofur einfalda skýringu á þessum vandamálum mínum en þar er fyrst og fremst kunnáttuleysi á ferðinni. Það sagði líka enginn að þetta yrði einfalt, en ég þarf að sjálfsögðu að lesa mér til um þetta meira heldur en ég hef gert. Ég þarf líka að ganga betur frá lausum endum í rafkerfi bílsins til þess að viftan, ljósin og fleira smálegt fari að vinna eðlilega. Þetta kemur allt saman á endanum en spurningin er hversu mikil nenna er til þess að klára, andinn hefur enganveginn svifið yfir mig ennþá, og til marks um það stendur bílinn ennþá skítugur niðrí skúr eftir allan þennan tíma frá því að ég setti hann inn. Ég verð að fara að drulla mér í að þrífa hann, annað væri leti:)

Jæja ég ætla allavega á einhverjum SAAB á rúntinn á gamlársdag, til dæmis Gustav-i nýja SAABinum hans Kjartans, Ég gæti líka keyrt Pernillu ef við verðum í ofsa stuði!

Meira seinna
Kv. Birkir

miðvikudagur, desember 21

Próf búin og vinna hafin

Ég byrjaði að vinna á mánudaginn niðrí klettagörðum hjá Heklu. Fór í eitthvað smá snatt til þess að byrja með en var svo settur í upptekt á heddum sem voru föst á 12 strokka aðalvél í Geirfuglinum sem Þorbjörn Fiskanes á og rekur. Mér finnst þetta ágætt, en þeir sem eru í verkefninu með mér eru ekki alveg eins upprifnir yfir þessu, kalla bátinn yfirleitt grútarpramma eða skítakopp :)

Mér gekk ágætlega í þessum prófum náði öllu og er bara í fínum málum. Þegar tími vinnst til ætla ég svo að fara að huga að SAABinum og fyrst Þórir kom með þá snilldarhugmynd að við færum á rúnt á SÖÖBunum okkar þ.e.a.s 99 GL og 900 Turbo á gamlársdag þá ætla ég að sjálfsögðu að reyna að setja í gang og keyra, það væri líka snilld að geta keyrt á honum í vinnuna eftir áramót.

Sjáum hvað setur.

mánudagur, desember 12

Jólalög eru sori !!!

Ég segi það og skrifa. Öll þessi nöfn m.a úr ídólinu eru með plötu sem heitir jólaskraut. Ég spyr: Hvað á eiginlega að selja þetta ógeð oft, treystir sér enginn til þess að semja jólalög? Sama tuggan aftur og aftur. Jæja mér datt þetta bara svona í hug vegna þess að nú fara þessi lög að komast í hámæli og ég þarf að loka eyrunum. Mér væri allavega alveg sama þótt ég heyrði jólalög aldrei aftur.

miðvikudagur, desember 7

Já nú eru prófin vel á veg komin og ég á einungis eftir að fara í 3 í viðbót. Þetta hefur allt gengið sæmilega og ég hef núna lokið öllum vélstjórnaráföngunum. Ef heldur sem horfir þá get ég klárað vorið 2007 sem verður rosalega gaman, því þá ætla ég ekki í meiri skóla í bili. Þá er að ákveða hvað ég vil starfa við næst og það er ekkert vitlaust að fara að hugsa um það. Vil ég prófa að vera til sjós, fæ ég einhverja vinnu hér í landi sem er spennandi eða á ég ef til vill að flytja út um tíma og prófa að vinna t.d. í Svíþjóð eða Danmörku, það reyndar freistar mín svolítið. (Þá færi ég að sjálfsögðu með SAABinn út og gengi í einhvern ógurlega stóran SAAB klúbb.) Noregur væri heldur ekki útilokaður en ég hallast frekar að hinum löndunum.

Annars er það að frétta að SAABinn hefur nú lokið útiveru sinni í bili. Það er ekki nógu gott að vera að láta hann standa úti því eins og ofur - Gunni benti mér á í kvöld liggja bílar undir skemmdum þegar þeir standa svona úti óhreyfðir. Ef hann þarf að fara eitthvað úr bílskúrnum aftur þá fer hann eitthvert inn. Til dæmis væri hægt að láta hann standa inni í bílastæðahúsinu við Vitatorg en þar hef ég heyrt að einhverjir geymi bílana sína, en þetta á víst að vera vaktað.

Jæja ég skrifa þegar ég er búinn í prófunum sem er á miðvikudag í næstu viku. Djöfull verður fínt að klára það!

Kv. Birkir